Nýjar upplýsingar úr prófunum Neyðarlínunnar benda til þess að símtalið eftir alvarlegt vinnuslys í Fljótsdal á þriðjudag hafi í raun borist Neyðarlínunni en símasamband verið svo slæmt að hvorki neyðarvörður né tilkynnandi heyrðu hvort í öðru.
Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir málið mjög alvarlegt ef fólk geti ekki náð raunverulegu sambandi við neyðarnúmerið þrátt fyrir að símasamband sé fyrir hendi.
Aðstandendur Jóhanns Frímanns Þórhallssonar, sem slasaðist alvarlega þegar foli féll yfir hann í Fljótsdal á þriðjudag, hefðu átt í miklum erfiðleikum með að ná sambandi við Neyðarlínuna. Heimamenn hafa lýst áhyggjum af versnandi farsímasambandi eftir lokun 2G- og 3G-fjarskiptakerfa.
Virðist frekar vera um slæmt samband að ræða
Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir Neyðarlínuna hafa gert prófanir með þeim sem reyndu að tilkynna slysið til þeirra. „Það gaf okkur mjög dýrmætar vísbendingar og þær eru þess eðlis að það virðist frekar vera um slæmt samband að ræða frekar en að þær hafi ekki náðst í gegn.“
Aðstandandi Jóhanns segir að hún hafi reynt að hringja tvisvar í neyðarlínuna en Jón segir að fyrra símtalið hafi ekki sést í símstöðinni. Seinna símtalið barst og varði í 12 sekúndur.
Jón segir of snemmt að fullyrða að um sama vanda sé að ræða og í tilvikinu á Skagaströnd frá því fyrr í sumar.
Vinna að því að greina vandann
Fjarskiptastofa og Neyðarlínan vinna nú að því að greina vandann. Jón segir að fjarskiptafyrirtækin hafi áður upplýst eigendur eldri tækja um lokun 2G- og 3G-kerfa.
„Eigendum þeirra tækja sem var ljóst að myndu detta úr sambandi við útfösun á 2G og 3G, þeim var sent skilaboð, fleiri en eitt og fleiri en tvö held ég, og jafnvel hringt í einhverja.“
Í vor voru um sex þúsund tæki sem fyrirséð var að myndu ekki ná sambandi eftir útfösunina. Hann segir þó ekki aðeins vera um farsíma að ræða, heldur líka ýmis stýritæki á við sumarbústaðahlið.
Að sögn hans verður búnaður einfaldlega að vera uppfærður eða endurnýjaður. Hann vill þó ekki leggja mat á hvort fjarskiptafyrirtækin hafi brugðist nægilega hratt við.
„Fólk á að geta náð í 112 svo fremi sem símasamband er fyrir hendi.“
„Það er ekki Neyðarlínunnar að segja hvort aðrir hafi tekið nógu fast á vandanum. Sýn neyðarlínunnar er hins vegar sú að fólk á að geta náð í 112 svo fremur að það sé símasamband,“ segir Jón.
Jón segir Neyðarlínuna hafa „algjöra núllsýn“ gagnvart slíkum frávikum. „Ef staðreyndin er sú að fólk sé með símasamband einhvers staðar á landinu en það sé svo slæmt að það náist ekki raunverulegt samband við 112, þá er það mjög alvarlegt mál.“
Í júlí var tekið upp nýtt varanúmer, 599 0112, vegna vandamála sem tengjast neyðarhringingum. Jón segir það hafa getað skipt máli í tilvikinu í Fljótsdal.
Þegar hringt er í 112 fer síminn í svokallaðan neyðarham. Nýja númerið sé hins vegar bara venjulegt símtal. „Það veitir þér engan forgang í kerfinu en hefði virkað eins og hvert annað símtal.“
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um farsímasambandið í Fljótsdal sem endar á viðtali við framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar.