Ragnar Árnason, prófessor emeritus, sakar rektor Háskóla Íslands um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og ESB með ákvörðun sinni um að meina honum að halda fyrirlestur á hátíðarsal skólans.
Fréttastofa greindi frá því í gær að fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um Ísland og ESB verði ekki á hátíðarsal skólans eins og auglýst hafði verið. Rektor sagði salinn ekki ætlaðan viðburðum sem eru pólitískir í eðli sínu og að bókun hans hafi ekki fylgt upplýsingar um að félagasamtök kæmu að fundinum.
Félagasamtökin sem um ræðir eru Áfram Ísland, sem beita sér gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Samtökin voru meðal þeirra sem voru merktir fyrir auglýsingu viðburðarins í Morgunblaðinu. Bæði Ragnar og forsvarsmenn samtakanna þvertaka þó fyrir að samtökin standi að viðburðinum.
Í yfirlýsingu til fréttastofu segir Ragnar að umsókn hans um salarleiguna hafi verið nákvæmlega í samræmi við fyrirhugaðan fund. Lætur hann umsóknina sjálfa fylgja með.
Segja fyrirlesturinn hvorki á vegum Áfram Íslands né Almenna bókafélagsins
Í opnu bréfi Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors emiritus, og Ragnars til rektors er þess krafist að Háskóli Íslands standi við leigusamninginn, en taki ekki upp á því að ritskoða virtan fræðimann vegna hugsanlegra skoðana sinna.
Rakið er að Baudenbacher sé einn virtasti fræðimaður heims um Evrópurétt, fyrrverandi prófessor í Háskólanum í St. Gallen í Sviss og gistiprófessor við fjölmarga háskóla. Hann var forseti EFTA-dómstólsins frá 2003 til 2017.
Fyrirlestur Baudenbachers, sem verður 10. ágúst, var auglýstur á heilli síðu í Morgunblaðinu í gær. Í auglýsingunni kom fram að rædd verði ýmis álitaefni um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu og fundarstjóri sé Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Þá verði bók dr. Baudenbachers og dr. Lauru M. Baudenbacher til sölu á staðnum.
Neðst í auglýsingunni er merki samtakanna Áfram Íslands og Almenna bókafélagsins og fram kemur að fyrirlesturinn sé „í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun“. Hannes er forstöðumaður rannsóknarsetursins.
Þegar fréttastofa hafði samband við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann stjórnar Áfram Íslands í gær, til að kanna hvort skipuleggjendur ætluðu að þiggja annan húsakost Háskólans fyrir fyrirlesturinn sagði hann að málið væri enn til úrlausnar hjá þeim sem standa að fyrirlestrinum, en hafnaði því þó að fyrirlesturinn væri á vegum Áfram Íslands.
Í opna bréfinu segir sömuleiðis að rannsóknarsetrið standi eitt að fundinum, hvorki Áfram Ísland né Almenna bókafélagið. „ Mörg dæmi eru um að áhugaðilar hafi auglýst upp á sitt einsdæmi fyrirlestra og aðra atburði sem fram hafa farið í HÍ,“ segir í bréfinu.