Sætir morð­hótunum og ó­hróðri í vin­sælum Facebook-hópi - Vísir

Sætir morð­hótunum og ó­hróðri í vin­sælum Facebook-hópi - Vísir

Sætir morð­hótunum og ó­hróðri í vin­sælum Facebook-hópi - Vísir

„Það er svo ótrúlega mikið af viðbjóði sem er tengt þessu en ég held áfram að halda hópnum uppi svo það sé vettvangur fyrir konur sem virkilega þurfa á því að halda. Ég hugsa alltaf að af ef það er að minnsta kosti ein kona sem fær hjálp með hræðilegt mál, þá er allt hitt þess virði,“ segir Linda Sæberg.

Linda er stjórnandi Facebook-hópsins Mæðra tips! þar sem tæplega fjörutíu þúsund konur koma saman og ræða allt sem tengist móðurhlutverkinu, börnum og barneignum. Hún tók við sem stjórnandi fyrir um átta árum og á þeim tíma hefur fjöldi meðlima fimmfaldast. Til marks um virknina hafa yfir tvö þúsund færslur birst í hópnum í júlí og oftar en ekki bætist við flóð af athugasemdum.

„Þetta tekur alveg ótrúlega mikinn tíma og tekur oft ótrúlega á því þær gera svolítið óraunhæfar kröfur, eins og ég fái greitt fyrir þetta,“ segir Linda.

Linda er ein við stjórnvölinn en þrátt fyrir að hafa yfirumsjón heimsækir hún síðuna afar sjaldan. Þess í stað reiðir hún sig á að meðlimir hópsins tilkynni henni um brot á reglunum, sem meðal annars banna hatursorðræðu og peningaóskir.

„Ég er í fullri vinnu með risastórt heimili og ég athuga oft á dag ef eitthvað er tilkynnt. Eins fæ ég líka mjög mörg skilaboð þar sem konur eru með frekar óraunhæfar kröfur til mín um þennan Facebook-hóp. Þetta er bara Facebook-hópur sem þú skráir þig í eða ekki. Þetta er ekki félag sem þú ert hluti af á neinn hátt.“

Tengdi sitt nafn við raunir annarra

Nýlegur eiginleiki í Facebook-hópum er að fólk getur skrifað færslur nafnlaust. Eiginleikinn er mikið notaður í hópnum á borð við Beauty tips!, Fjármálatips og einnig Mæðra tips!. Áður en nafnlausu færslurnar stóðu til boða tók Linda við færslum fyrir hönd kvenna sem óskuðu eftir nafnleysi og undir sínu eigin nafni. 

„Eftir margar beiðnir frá mörgum konum sem þurftu að spyrja nafnlaust um mjög viðkvæm málefni, sem kannski tengdust börnunum sínum og vantaði stað til að spyrja út í eitthvað, þá bauð ég upp á það,“ segir hún.

Hún hafi velt fyrir sér hvernig hún myndi leysa það og ákvað að taka skýrt fram að um væri að ræða nafnlaust innlegg sem stjórnandi birti.

„Ég gerði þetta í mörg, mörg ár sem gerir það að verkum að ég hef enga tölu á því hversu oft ég eða fjölskyldumeðlimir mínir vorum spurð út í færslurnar því þau héldu að ég væri að birta þær.“

Þótt Lindu berist ein og ein skilaboð þegar gamlar færslur í hennar nafni birtast notendum hópsins þá er áreitið mun minna. Nýlegi möguleikinn með nafnlausum færslum hafi verið mikill léttir fyrir hana. Að þurfa ekki að tengja sitt nafn við raunir annarra.

Sér nöfn allra þrátt fyrir nafnleysið

Linda hikar ekki við að eyða þeim færslum sem hún telur ekki þurfa að vera nafnlausar.

„Mér finnst gríðarleg aukning á því að fólk nýti sér frekar að skrifa nafnlaust þó það sé ekki neitt sem þarf að vera nafnlaust. Ef þetta kemur upp á vegginn hjá mér og það er ekki viðkvæmt málefni þá eyði ég því.“

Sama á við um alls konar hatursorðræðu og dónalegar athugasemdir. Vert er að taka fram að þrátt fyrir nafnlausa eiginleikann getur stjórnandi Facebook-hóps alltaf séð nöfn þeirra sem birta færslur eða skrifa athugasemdir.

„Ég held þær geri sér ekki grein fyrir því að stjórnandinn sjái öll nöfnin,“ segir Linda.

„Ef ég sé sama nafnið koma upp aftur og aftur í dónalegum færslum eða athugasemdum þá eyði ég þeim umsvifalaust út úr hópnum. Þær verða oft hissa og senda á mig til að láta vita að þær hafi dottið út úr hópnum. Þá segi ég þeim að þær hafi verið fjarlægðar úr hópnum og sendi skjáskot af færslunum þeirra. Ég heyri sjaldnast í þeim aftur.“

Hún tekur skýrt fram að það sé ekki málfrelsi innan hópsins þegar komi að minnihlutahópum. Þrátt fyrir að hún sjái nöfnin á bak við nafnlausu innleggin segist Linda hafa sett sér þá reglu að gefa þau aldrei upp. Ekki nema lögreglan hafi samband.

„Ég geri undantekningar ef barn eða kona er í hættu og lögreglan hefur samband við mig. Þá hef ég gefið upp nafn viðkomandi.“

Tveir menn sem hótuðu lífláti

Það líður vart sá dagur sem Linda fær ekki neikvæð eða dónaleg skilaboð frá notendum hópsins, síðast nokkrum klukkustundum áður en undirrituð ræddi við hana. Hún er því með sérstakan tengilið hjá lögreglunni bæði vegna færslna sem birtast í hópnum en einnig fyrir hennar eigið öryggi.

„Þetta er ótrúlega mikið áreiti. Ég hef fengið hótanir bæði frá konum inni í hópnum og kærustum þeirra,“ segir hún.

„Ég hef verið í samskiptum við barnavernd ef ég sé þannig innlegg. Ég hef fengið hótanir. Það voru tveir menn á eftir mér í ótengdum málum sem hótuðu að drepa mig. Ég hef líka fengið margar hótanir frá mönnum sem er verið að ræða þarna inni.“

Karlmenn sækist mikið eftir því að komast í hópinn, sér í lagi um helgar. Linda telur það tengjast næturlífinu. Hún fer yfir allar umsóknir en svara þarf spurningum til að komast þar inn. Umsóknirnar skipta hundruðum og áður en spurningarnar stóðu til boða þurfti hún að rýna í aðgang hvers og eins sem sótti um aðgang.

Hugsar oft um að hætta

„Þetta tekur á og það hafa komið mörg erfið mál upp þarna þar sem ég hef verið með lögreglunni langt fram á nótt að lesa. Það eru mörg mál sem sitja enn í mér en í öllum þessum málum veit ég að það var einhver sem fékk hjálp,“ segir Linda.

Það lá því beinast við að spyrja hvort hún hefði íhugað að hætta sem stjórnandi og svarar hún því strax já.

„Ég hef oft hugsað um að eyða hópnum og láta hann byrja annars staðar. Hvort ég eigi bara að eyða þessu með þeim útskýringum að konurnar leyfi sér svo mikið og verði svo svakalega dónalegar að ég ráði ekki við þetta,“ segir hún en tekur fram að hún hafi tekið sér pásu frá stjórnendastörfunum.

„Ég greindist með krabbamein og fór í gegnum erfiða krabbameinsbaráttu og tók aftur við þegar það var búið. Ég hef margoft hugsað að ég geti ekki staðið í þessu og velt fyrir mér hvort ég ætti að hætta. Það er svo rosalega mikið af viðkvæmum málefnum sem fara í gegn og ég get ekki hugsað mér að setja þetta í hendurnar á hverjum sem er.“

Í umfjöllun breska fjölmiðilsins Metro er haft eftir Söru Hodge, sálfræðingi með áherslu á samskipti á netinu, þar sem hún segir þá sem mótmæla harðlega reglum stjórnenda hópanna upplifa að verið sé að taka af þeim frelsi internetsins. Það búist ekki við því að heðgun þeirra sé vöktuð og komi upp ákveðin valdabarátta.

„Bara Facebook-hópur“

Linda telur að þrátt fyrir dónalega umræðu og hótanir sé hópurinn hjálplegur.

„Í grunninn er þetta ótrúlega hjálpsamur og góður hópur og það er ótrúlega margar flottar og hjálplegar konur. Þær verða bara ótrúlega háværar þessar leiðinlegu dæmandi athugasemdir. Það er kannski ekki annað hægt þegar það er fjörutíu þúsund manna viðkvæmur hópur að tala saman,“ segir Linda.

„Ég sé oft seinna meir að einhver skrifar og þakkar fyrir hvað hún fékk mikla hjálp og hvað allt gangi betur. Það er alveg mikil hjálp sem á sér stað.“

Linda minnir sig á að hún sé ekki ábyrg fyrir því þegar konur séu dónalegar hver við aðra. Facebook krefjist þess að hafa stjórnanda í hverjum hópi.

„Þetta er bara Facebook-hópur.“

#facebook #morðhótunum #sætir #vinsælum #óhróðri


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912834d/saetir-mordhotunum-og-ohrodri-i-vinsaelum-facebook-hopi

📰 Aðrar fréttir

Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur
📅 14.09.2026 👁️ 0
Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur
Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að herða skilyrði sem innflytjendur þurfa ...
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
📅 14.09.2026 👁️ 0
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgi Jónsson sem forstjóra bankans. Jón Birgir mun hefja störf þann 1. desember næstkomandi og tekur þá við af Árm...
Nýtur miklu meira trausts en mamma sín
📅 14.09.2026 👁️ 0
Nýtur miklu meira trausts en mamma sín
Ingiríður Alexandra krónprinsessa Noregs nýtur mikils trausts meðal landa sinna og raunar er traustið hennar í garð miklu meira en þjóðin hefur til mó...
Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng - Vísir
Fádæma spenna var þegar talning atkvæða í sænsku þingkosningunum hófst í gær. Fljótlega varð ljóst að munurinn á milli hægri blokkar ríkisstjórnarinna...
Rúmin of stutt og herbergin of fá
📅 14.09.2026 👁️ 0
Rúmin of stutt og herbergin of fá
Gistiaðstaðan sem er ætluð íþróttamönnum á Asíuleikunum sætir mikilli gagnrýni forsvarsmanna sumra þeirra ríkja sem taka þátt. Keppni hefst í þessari ...
Rigning norðarlands en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Rigning norðarlands en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það verði dálítil rigning norðanlands og þokusúld en að það ætti að haldast að mestu þurrt í öðru...
British tourists continue to dominate Canary Islands holiday market
📅 14.09.2026 👁️ 0
British tourists continue to dominate Canary Islands holiday market
British tourists continue to dominate the Canary Islands’ tourism industry, with the latest official figures showing that 576,338 visitors from the Br...
Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Miami minningar Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaug...
Lýsa yfir miklum vonbrigðum með Vegagerðina - „Eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Lýsa yfir miklum vonbrigðum með Vegagerðina - „Eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir“
Byggðaráð Langanesbyggðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu Vegagerðarinnar. Segir byggðaráð að sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um að ...
Hákarl réðst á brimbrettakappa
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hákarl réðst á brimbrettakappa
Hákarl réðst á brimbrettakappa á sextugsaldri í sjónum nærri Glenfield-strönd í vestur Ástralíu í gær. Maðurinn var fluttur í skyndi á spítala eftir á...
Dagamunur í veðrinu
📅 14.09.2026 👁️ 1
Dagamunur í veðrinu
Landsmenn geta búist við nokkrum umhleypingum í veðri næstu daga. Í dag verður þurrt að kalla víðast nema norðanlands, á Austurlandi og suðaustanlands...
Tollum hótað vegna hval­veiða sem verða bannaðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Tollum hótað vegna hval­veiða sem verða bannaðar - Vísir
Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er boðað að frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar verði lagt fram í febrúar. Byggt verður á skýrslu um lagaum...
Driver who smashed into TF-1 bus stop was more than three times over drink-drive limit
📅 14.09.2026 👁️ 0
Driver who smashed into TF-1 bus stop was more than three times over drink-drive limit
A reckless driver whose car left the TF-1 motorway and smashed into a bus stop in the south of Tenerife is being investigated after a breathalyser tes...
John­son rétt slapp við á­rás Rússa - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
John­son rétt slapp við á­rás Rússa - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að dróninn hafi hæft vélarrými lestarinnar en samkvæmt tilkynningu úkraínskra stjórnvalda ...
Út­kall vegna hópslags­mála í bíla­kjallara - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Út­kall vegna hópslags­mála í bíla­kjallara - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en þar segir að lögreglan hafi farið á staðinn eftir að tilkynning um hópslagsmálin barst. Um var að ræða útkal...
Are two-seat ‘mobility scooters’ rented to tourists actually legal in the Canary Islands?
📅 14.09.2026 👁️ 0
Are two-seat ‘mobility scooters’ rented to tourists actually legal in the Canary Islands?
Two-seat electric “mobility scooters” have become a familiar sight in tourist resorts across the Canary Islands, allowing couples to travel together a...
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi
📅 14.09.2026 👁️ 1
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi Um­hverf­is­ráð­herra mun mæla fyr­ir ETS2-kerfi sem los­un­ar­heim­ild­ar­kerfi fyr­ir bygg­ing­ar, vega­sam­...
Búið að telja 94% atkvæða
📅 14.09.2026 👁️ 1
Búið að telja 94% atkvæða
Rauða blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða í þingk...
Búið að telja 94% atkvæða en of snemmt að skera úr um hver vinnur
📅 14.09.2026 👁️ 1
Búið að telja 94% atkvæða en of snemmt að skera úr um hver vinnur
Rauðgræna blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum blágulu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða ...
Búið að telja 94% en of snemmt að skera úr um hver vinnur
📅 14.09.2026 👁️ 0
Búið að telja 94% en of snemmt að skera úr um hver vinnur
Rauðgræna blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum blágulu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að kynna niðurstöður ...
Rússnesk drónaárás nærri lest með evrópskum diplómötum
📅 14.09.2026 👁️ 1
Rússnesk drónaárás nærri lest með evrópskum diplómötum
Stjórnvöld í Póllandi og Úkraínu fordæma árás sem Rússar gerðu á lest nærri landamærunum milli Póllands og Úkraínu í gærmorgun. Lestin var Úkraínumegi...
Tilkynnt um hópslagsmál í bílakjallara
📅 14.09.2026 👁️ 2
Tilkynnt um hópslagsmál í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hópslagsmál í bílakjallara í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar.Flestir voru farnir þegar lö...
Peers to debate donations law changes after Reform's £72m windfall
📅 14.09.2026 👁️ 1
Peers to debate donations law changes after Reform's £72m windfall
The government is seeking to change the law on donations to UK political parties from British expats.
Select committee calls for bill to address AI threat to human rights
📅 14.09.2026 👁️ 0
Select committee calls for bill to address AI threat to human rights
A cross-party group of MPs and peers identifies human rights risks that existing laws appear not to cover.
MPs and Lords call for new law to address AI threat to human rights
📅 14.09.2026 👁️ 1
MPs and Lords call for new law to address AI threat to human rights
Existing laws are not equipped to address the risks to human rights being posed by artificial intelligence, UK politicians say.
Trump lagði til sameiningu með Norður-Írlandi
📅 14.09.2026 👁️ 1
Trump lagði til sameiningu með Norður-Írlandi
Donald Trump forseti Bandaríkjanna lauk tveggja daga heimsókn til Írlands í dag. Heimsókninni var mótmælt víða.Trump fékk móttökur eins og þjóðhöfðing...
Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol
📅 14.09.2026 👁️ 1
Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol
Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol-ströndinni á Spáni í gær, þar af er einn með alvarlega brunaáverka.Eldarnir kviknuðu í fjalllendinu v...
Vill svipta kvikmyndaleikstjóra ríkisborgararétti sínum
📅 14.09.2026 👁️ 1
Vill svipta kvikmyndaleikstjóra ríkisborgararétti sínum
Menningarmálaráðherra Ísrael kallar ísraelska heimildamyndaleikstjóra landráðamenn og segir að það eigi að svipta þá ríkisborgararétti.Leikstjórarnir ...
Why a Russian strike on train near Ukraine-Poland border could mark an escalation
📅 14.09.2026 👁️ 1
Why a Russian strike on train near Ukraine-Poland border could mark an escalation
No casualties were reported after a Russian drone struck a train shortly after Boris Johnson and top European officials left the area.
UK Weather: Turning cooler, wetter and windier this week
📅 14.09.2026 👁️ 1
UK Weather: Turning cooler, wetter and windier this week
A stronger jet stream will bring a distinctly autumnal look to our weather this week, but is there a September heatwave on the horizon later this mont...
Hníf­jafnt og mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hníf­jafnt og mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
Sósíaldemókratar undir forystu Magdalenu Andresson er stærsti flokkurinn og hlaut 28 prósent atkvæða nú þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin. Þar...
Mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
Sósíaldemókratar undir forystu Magdalenu Andresson er stærsti flokkurinn og hlaut 28 prósent atkvæða nú þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin. Þar...
Buckingham Palace works uncover trove of everyday items dating back to 1800s
📅 13.09.2026 👁️ 1
Buckingham Palace works uncover trove of everyday items dating back to 1800s
A collection of historic, forgotten items have been found during the restoration of the London royal residence.
The Pitt is up for 25 Emmys - but the show's biggest fans are real-life doctors
📅 13.09.2026 👁️ 2
The Pitt is up for 25 Emmys - but the show's biggest fans are real-life doctors
Those in the medical profession say the HBO Max show about a US hospital emergency room is the most realistic medical drama yet.
Why a fresh wave of North Korean soldiers may fight in Russia's war in Ukraine
📅 13.09.2026 👁️ 1
Why a fresh wave of North Korean soldiers may fight in Russia's war in Ukraine
North Korea will continue to send its soldiers to fight in Russia's war, but only for as long as it is profitable to do so, writes the BBC's Quentin S...
I had 11 years of chemotherapy for a cancer I didn't have
📅 13.09.2026 👁️ 2
I had 11 years of chemotherapy for a cancer I didn't have
Becky Jones is among more than 40 people taking legal action against a hospital trust.
Gloomy forecast for tenants as rent rises set to speed up
📅 13.09.2026 👁️ 2
Gloomy forecast for tenants as rent rises set to speed up
The cost of renting is expected to rise by 4% or 5% a year by December, according to property website Zoopla.
Rent rises set to speed up in gloomy forecast for tenants
📅 13.09.2026 👁️ 1
Rent rises set to speed up in gloomy forecast for tenants
The cost of renting is expected to rise by 4% or 5% a year by December, says property website Zoopla.
Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku banka
📅 13.09.2026 👁️ 2
Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku banka
Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Kviku banka hf. Hann tekur til starfa 1. desember og tekur þá við af Ármanni Þorvaldssyni sem tilk...
„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ - Vísir
Bragi segir smekkleysið hafa sigrað og að metnaðarleysi sé komið til að vera. „En ég á bara svo erfitt með að trúa því að við ætlum að sætta okkur við...
Óvænt fertugsafmæli kom upp sár svik - „Hvernig gat hann gert mér þetta?“
📅 13.09.2026 👁️ 2
Óvænt fertugsafmæli kom upp sár svik - „Hvernig gat hann gert mér þetta?“
Kona leitar ráða til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun, Dear Deidre. Hún ákvað að koma kærasta sínum á óvart og halda fyrir hann fertugsafmæli. Hún...
US Open 2026 results: Alexander Zverev beats Ben Shelton for second Grand Slam title
📅 13.09.2026 👁️ 1
US Open 2026 results: Alexander Zverev beats Ben Shelton for second Grand Slam title
Alexander Zverev lands his second Grand Slam title after ending Ben Shelton's hopes of becoming a rare home US Open men's champion.
Þungt högg fyrir ferða­þjónustu á Austur­landi - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
Þungt högg fyrir ferða­þjónustu á Austur­landi - Vísir
Á síðasta ári komu tuttugu og fimm skemmtiferðaskip til Borgarfjarðar eystri en á næsta ári stefnir í að þau verði einungis níu eða tíu að sögn Rúnars...
Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af - Vísir
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum sem var kveðinn upp um miðjan júlí, en birtist á vef dómstólanna fyrir skömmu. Atvikið sem...
Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“
📅 13.09.2026 👁️ 2
Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“
Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður, textasmiður og íslenskufræðingur furðar sig á límmiðum sem grunnskólabörn hafa fengið afhenta frá lögreglunni...
Gríðarlega mjótt á munum í kosningunum í Svíþjóð
📅 13.09.2026 👁️ 2
Gríðarlega mjótt á munum í kosningunum í Svíþjóð
84% atkvæða í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í dag hafa verið talin og staðan gæti varla verið jafnari. Rauða blokkin leiðir enn með einum þingm...
Deep-fried food banned under new school dinner rules in England
📅 13.09.2026 👁️ 2
Deep-fried food banned under new school dinner rules in England
The government describes its new school food standards as "once-in-a-generation changes".
'Culture shift' needed in how UK does business, Andy Burnham urges
📅 13.09.2026 👁️ 2
'Culture shift' needed in how UK does business, Andy Burnham urges
Burnham has said those who take risks should be backed by government, but his government has been criticised for increasing business costs.
Þriðjungur borgar­búa vill skipta um ferða­máta - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 2
Þriðjungur borgar­búa vill skipta um ferða­máta - Vísir
Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarverkefnisins Tilraunaborgir á vegum Reykjavíkurborgar sem nýlega voru kynntar í umhverfis- og skipulagsnefnd....
Síðasta sjoppan á Dalvík skellir í lás
📅 13.09.2026 👁️ 2
Síðasta sjoppan á Dalvík skellir í lás
Söluskáli Olís á Dalvík lokar 1. nóvember. Söluskálinn er síðasta sjoppan í bænum og eru Dalvíkingar í öngum sínum yfir lokuninni. Söluskálinn er síða...