Ekki er rétt að sænska krónan sé fasttengd evrunni. Sænska krónan er með fljótandi gengi, rétt eins og sú íslenska, en í því felst að gengi hennar stjórnast af framboði og eftirspurn á hverjum tíma.
Í samfélagsmiðlamyndbandi frá hreyfingunni Sjá, sem berst fyrir því að Íslendingar gangi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, er því haldið fram að sænska krónan sé tengd við evruna.
Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, lýsir í myndbandinu reynslu sinni af því að taka húsnæðislán í Svíþjóð.
„Ég hef búið í Svíþjóð, átt íbúð þar og verið með húsnæðislán í öðrum gjaldmiðli, sænskri krónu – sem er tengd við evru – og ég borgaði svo miklu lægri vexti þar,“ segir hún og lætur fylgja með að sænska krónan sé „tengd evrunni“.
Rangfærslan vakti nokkra athygli á samfélagsmiðlum í gær, en myndbandið er þó enn í birtingu.
Margrét Rós brást við fréttaflutningnum á Facebook. „Svíar hafa notið góðs af aðild þeirra að ESB. Það er það sem ég meina - sænska krónan er ekki BUNDIN evru en hún er tengd evrunni að því leiti að viðskipti eru mikil milli evrusvæðisins og Svíþjóðar. Stýrivextir í Svíþjóð sveiflast líka líkt stýrivöxtum í Evrópu,“ skrifar hún.
Svíar eru eitt af sex ríkjum Evrópusambandsins sem nota ekki evru. Upptöku evru var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu árið 2003. Á síðustu fimm árum hefur gengi sænsku krónunnar miðað við evru hæst farið í 0,10 evrur í nóvember 2021, en lægst í 0,082 í júní 2023.
Þetta er í annað sinn sem myndband á vegum Sjá-hreyfingarinnar vekur athygli vegna rangfærslu. Í síðasta mánuði var því haldið fram í myndbandi hreyfingarinnar að lítri af mjólk kostaði 380 krónur á Íslandi og sú upphæð sett í samhengi við mjólkurverð í Evrópu. Hið rétta er að lítrinn kostar 234 krónur þar sem ódýrast er. Myndbandinu var eytt eftir að bent var á rangfærsluna.
Sömu sögu er að segja af hreyfingunni Áfram Ísland, sem berst gegn aðildarviðræðum við ESB. Hreyfingin eyddi á dögunum myndbandi þar sem því var haldið fram að málskotsréttur forseta myndi heyra sögunni til ef Ísland gengur í ESB.