Gardermoen-flugvelli við Ósló var lokað í fimm klukkustundir í morgun vegna verkfalls tólf flugumferðarstjóra á flugvellinum auk Fleslands-flugvallar í Bergen. Verkfallið hófst á föstudagsmorgun en búist er við því að átta flugumferðarstjórar til viðbótar hefji verkfall á þriðjudaginn.
Að sögn Avinor, rekstraraðila margra helstu flugvalla Noregs, mega ferðalangar búast við áhrifum lokunarinnar í dag svo sem löngum biðröðum og aflýsingum flugferða. Langar biðraðir hafa þegar myndast á Gardemoen-flugvelli.
Alls hefur 135 flugferðum verið aflýst þegar þessi frétt er skrifuð en Óslóarflugvöllur kom verst út úr verkfallinu, þar sem 72 brottförum og 47 komuflugferðum var aflýst sem hafði áhrif á um níu þúsund farþega segir í umfjöllun NRK.
Komuflugi flugfélagsins SAS frá Ósló til Keflavíkurflugvallar klukkan 9:50 í morgun var aflýst sem og brottför SAS til Óslóar klukkan 10:40 er kemur fram á vef Isavia.
Ertu þú á Gardermoen-flugvelli? Var fluginu þínu aflýst? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Ertu þú á Gardermoen-flugvelli? Var fluginu þínu aflýst? Sendu okkur fréttaskot hérna.