Reykjavíkurborg heldur úti mælaborði sem sýnir kjörsókn á ólíkum kjörstöðum borgarinnar en miðað við stöðuna klukkan 20:00 í kvöld höfðu 51,31% Reykvíkinga kosið. Þetta er betri kjörsókn en á sama tíma í kosningunum árið 2022 þegar kjörsókn var 48,99% klukkan 20:00.
Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, telur að kjörsókn annars vegar í Rimaskóla og hins vegar í Hagaskóla bendi til þess að eitthvað sé í aðsigi, en næstum helmingur Grafarvogsbúa sagðist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í nýjustu könnun Gallup og tæp 18 prósent sögðust ætla að kjósa Miðflokkinn.
Klukkan 20:00 var kjörsókn í Rimaskóla 58,88% en á sama tíma aðeins 47,21% í Hagaskóla. Til samanburðar má nefna að heildarkjörsókn í Rimaskóla var 54,67% árið 2022 og 53,3% í Hagaskóla.
Hér er eitthvað í aðsigi pic.twitter.com/Br7XEiZuqi
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) May 16, 2026
Fyrir áhugasama er hægt að rýna í kjörsóknina hér.