Tölvuleikjaspilarinn og streymarinn Rósa Björk sem þekkt er sem „Goonhunter“ varar við nikótínpúðum í myndbandi sem hún birti á TikTok í vikunni.
„Storytime hvernig ég dó næstum því af því að kaupa mér nikótínlausa dollu“, segir Rósa og bætir við að hún hafi beðið um nikótínlausa púða í verslunni.
„Ég tek þessar lummur í vörina eins og ég hef alltaf gert. Ég tek kannski fjórar um kvöldið. Daginn eftir líður mér ógeðslega illa, ég er með massífan hausverk og mér líður bara hræðilega,“
segir Rósa að hún hafi ekki áður séð þessa tegund sem hún keypti, en hún hafi beðið sérstaklega um nikótínlausa púða. Í lok dags tvö hafi hún verið búin með dolluna eða um 13 stykki.
„Þegar ég les á dolluna eru þetta koffínlummur. Hverjum í andskotanum datt í hug að gera koffínlummur? Við erum öll þambandi Nocco, Collab, Monster, Red bull allan daginn. Af hverju þarf að vera koffín líka í lummum?“
Rósa segist hafa lesið á dolluna að í hverjum púða séu 100 mg af koffíni. Og veltir fyrir sér af hverju enginn hafi sagt henni það þegar hún keypti dolluna.
„Við getum miðað við að einn Nocco sé 100 mg. Það er bara eins og ég hafi drukkið 13 Nocco yfir daginn. Mér leið í tvo daga eins og rúta hafi keyrt á mig. Af því ég var að taka alltof mikið af þessu af því ég vissi ekki að þetta væri koffín.“
Segir Rósa að hún hefði viljað vera upplýst betur við kaupin um innihald nikótínpúðana.
„Út af því þetta getur alveg verið hættulegt. 1300 ml af koffíni á einum degi, ég held að það sé ekki sniðugt.“
@g00nhunter🙂🙂🙂 gaman að þessu♬ original sound – GoonHunter