Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu fyrir helgi að Snorri Olsen ríkisskattstjóri hefði ekki farið að lögum þegar hann lagði niður þrjú embætti á tollgæslusviði Skattsins. Umræddir þrír embættismenn voru allir reyndir í starfi en eftir þessa ákvörðun ríkisskattstjóra létu þeir allir af störfum. Hins vegar voru aðrir starfsmenn ráðnir í stað þeirra en þá í stöðu tollvarða. Beinir umboðsmaður því til ríkisskattstjóra að rétta hlut þremenninganna.
Ríkisskattstjóri beitti reynda embættismenn órétti