Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri vill ekki tjá sig um nýfallinn Landsréttardóm þar sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu var talinn hafa brotið meðalhóf er hún gegndi embætti lögreglustjóra.
Árið 2023 var Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sendur í launað leyfi frá störfum hjá embættinu og færður til í starfi vegna ásakana um kynferðislega áreitni í garð samstarfskonu sinnar.
Stefndi Margeir íslenska ríkinu í kjölfarið og hefur Landsréttur nú komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglustjóra hefði verið meira íþyngjandi en nauðsyn bar til og því hefði verið brotið á bága við meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins. Margeir á rétt á miskabótum.
„Ég má ekki tjá mig um það“
Halla Bergþóra gegndi embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu er mál Margeirs kom upp en hún kýs ekki að tjá sig um niðurstöðu dómsins.
„Þetta er bara mál embættisins. Ég má ekki tjá mig um það. Þú verður bara að heyra í þeim,“ sagði Halla Bergþóra í samtali við mbl.is er leitað var eftir viðbrögðum hennar.
Halla Bergþóra tók við embætti ríkislögreglustjóra í apríl en Sigríður Björk Guðjónsdóttir sagði af sér embættinu í lok síðasta árs. Halla Bergþóra hafði gegnt embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2020 en hafði þar áður verið lögreglustjóri á Norðurlandi eystra.