Það var stór áfangi þegar ný lestarleið, milli Oulu í Finnlandi og Haparanda í Svíþjóð, var opnuð í morgun. Með því hófust að nýju reglulegar lestarsamgöngur milli Finnlands og Svíþjóðar en lestarleiðin milli Kemi og Haparanda var lögð niður árið 1988. Þá voru lestarvagnarnir orðnir úreltir.
Lestarsamgöngur voru stopular eftir það og frá 1992 gekk engin farþegalest þarna á milli.
Meðal þess sem tafði fyrir að lestarsamgöngum væri komið á að nýju var að breidd lestarteinanna er ekki sú sama í löndunum. Yfirvöld hafa þó unnið að tæknilegum lausnum og síðustu hindruninni var rutt úr vegi 2021 þegar finnska ríkisstjórnin samþykkti rafvæðingu síðasta kaflans á leiðinni.
Það varð mikill fögnuður í Haparanda í Svíþjóð þegar fyrsta lestin kom þangað. Fjölmargir mættu með fána beggja landa. Meðal farþega var Lulu Ranne innanríkisráðherra Finnlands.
Áfanginn er sérstaklega stór fyrir Finna sem fá með þessu varanlega lestartengingu yfir til Evrópu, sem hefur ekki verið þessi tæpu 40 ár. Lestarferðin tekur þrjá tíma. Til að byrja með er farið milli borganna tvisvar á dag en stefnt er að því að fjölga ferðum eftir áramót.