Rabbíninn umdeildi Shmuley Boteach hefur verið á ferð á Íslandi undanfarið. Hefur hann, í kjölfar ýmissa uppákoma, sagt Íslendinga vera gyðingahatara og það sé ekki öruggt fyrir Gyðinga að vera á Íslandi. Í nokkrum nýjum myndböndum hefur hann ítrekað þessar ásakanir sínar og segir þau sýna áreitni og ofbeldi í sinn garð. Ekki er hins vegar að sjá eða heyra nokkurt slíkt í umræddum myndböndum og í fjölda athugasemda við þau fær málflutningur rabbínans takmarkaðar undirtektir.
Rabbíninn umdeildi sakar Íslendinga enn á ný um gyðingahatur - Undirtektirnar takmarkaðar og lítið að sjá á myndböndunum