Systkinin Daníel Andri og Hrafnhildur fundu fyrstu pysju tímabilsins á pallinum hjá ömmu sinni og afa í Vestmannaeyjum.
„Pysjutíminn er því formlega hafinn,“ segir í færslu Pysjueftirlitsins sem hvetur alla til að skrá pysjurnar á lundi.is svo hægt sé að fylgjast með fjöldanum.
Samkvæmt heimasíðunni hafa alls fundist fimm pysjur á þessum tveimur dögum. Tímabilið hefst í ágúst þegar pysjurnar fara að hugsa sér til hreyfings. Þær taka á loft og stefna út á haf en allmargar fljúga í áttina að ljósunum í Vestmannaeyjabæ.
„En pysjurnar eiga sér góða bandamenn í bænum. Hvarvetna eru hjálpfúsar hendur barna sem fara um bæinn á þessum árstíma með pappakassa og safna saman þeim pysjum sem villst hafa af réttri leið. Um nóttina fá pysjurnar gistingu í mannheimum. En næsta dag er farið með þær í pysjueftirlitið og síðan niður að sjó og þeim gefið frelsi,“ segir á heimasíðu Pysjueftirlitsins sem fylgst hefur með fjölda pysja frá árinu 2003.