Casemiro er orðinn pirraður á spurningum blaðamanna út í Neymar, liðsfélaga sinn hjá brasilíska landsliðinu, í aðdraganda HM í fótbolta í Norður-Ameríku í sumar.
Casemiro og Neymar eru með reyndari leikmönnum í brasilíska hópnum en sá síðarnefndi glímir við meiðsli og gæti misst af fyrsta leik liðsins gegn Marokkó.
Mikilvægur eins og hinir 25 leikmennirnir
Þó að Neymar sé orðinn 34 ára gamall og farinn að spila með Santos í heimalandinu er hann enn langvinsælasti leikmaðurinn hjá stuðningsmönnum Brasilíu og því beinast flestar spurningar að honum.
„Enn og aftur komum við hér saman og tölum ekki um annað en Neymar, Neymar og Neymar,“ sagði Casemiro á blaðamannafundi.
„Neymar er mikilvægur fyrir hópinn eins og allir hinir 25 leikmennirnir,“ bætti Casemiro við.
Brasilía leikur í C-riðli mótsins með Marokkó, Skotlandi og Haítí.