Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir - DV

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir - DV

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir - DV

Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að leigusali geti haldið eftir hluta af tryggingu sem fyrrum leigjendur hans lögðu fram, vegna skemmda sem urðu á parketi íbúðar leigusalans eftir skó með pinnahælum. Líklegt er að upphæðin sem þetta kostaði leigjendurna sé töluvert hærri en verðmæti skónna sjálfra.

Leigusalinn er raunar kona en óljóst er hvort aðeins annar leigjandinn gekk í skóm með pinnahælum um íbúðina eða aðeins annar þeirra.

Krafðist leigusalinn þess að leigjendurnir yrðu látnir bera óskerta bótaábyrgð á skemmdunum á parketinu, alls um 600.000 krónur og hún gæti fengið þá upphæð með því að að halda eftir tryggingunni en leigjendurnir viðurkenndu ábyrgð upp á um 65.000 krónur.

Gerðu aðilar málsins ótímabundinn leigusamning um leigu á íbúðinni í mars 2022.

Í kröfu leigusalans kom fram að áður en leigutíminn hófst hafi farið fram ástandsskoðun á íbúðinni og niðurstaða hennar hafi verið sú að íbúðin væri í mjög góðu ástandi.

Leigusalinn sagðist hins vegar í mars 2025 hafa tekið eftir förum á gólfi eftir hælaskó og sent móður annars leigjandans tölvupóst þess efnis og beðið um að skór með pinnahælum yrðu ekki notaðir innandyra.

Parket

Leigusalinn sagði enn fremur að við lok leigutíma hafi sá aðili sem hafi framkvæmt ástandsskoðunina við upphaf leigutíma ekki verið laus og enginn getað leyst hann af. Henni hafi því verið ráðlagt símleiðis að taka sjálf myndir af íbúðinni sem hún hafi gert. Í ágúst 2025 hafi hún sent móður annars leigjandans kröfu í tryggingu vegna skemmda á parketi og svalalokun. Kostnaður við að gera við parketið hafi numið 535.680 krónum. Síðar í sama mánuði hafi kröfunni verið hafnað að því er varðaði parketið en samþykkt varðandi svalalokun.

Ástandsskoðun hafi síðan farið fram í september sem leigjendunum hafi verið boðið að vera viðstaddir. Sú skoðun hafi leitt í ljós að ekki hafi verið um eðlilegt slit á parketinu að ræða. Leigjendurnir hefðu ekki sannað að þeir bæru ekki ábyrgð á skemmdunum sem hefðu orðið á parketinu.

Ekki viðstödd

Leigjendurnir bentu á í sínum andsvörum að þeir hafi ekki verið viðstaddir þegar leigusalinn tók myndir í íbúðinni. Leigusalinn hafi verið búin að ákveða að fá skoðunarmann sem hún þekkti og væri starfsmaður parketverslunar, til að skoða gólfið og meta skemmdir. Sögðust leigjendurnir hafa farið fram á að vera viðstaddir þá skoðun en leigusalinn hafi ekki getað gefið skýr svör um það hvenær hann kæmi og það hafi ekki virst ákveðið þannig að hún hafi í raun aldrei gefið þeim tækifæri til að vera viðstaddir þá skoðun.

Eftir þá skoðun hafi það verið metið svo að það væru skóför eftir pinnahæla um alla íbúð og að það þyrfti að slípa og lakka parketið til að lagfæra skemmdir. Sögðust leigjendurnir hafa hafnað þeirri kröfu enda ekki samþykkt að slík för væru um alla íbúð, eins og til dæmis undir rúmum, stofusófa og öðrum húsgögnum. Það að fara fram á að þeir greiði kostnað við slípun og lökkun á allri íbúðinni væri ósanngjarnt og fengi leigusalinn þannig parketið í betra ástandi við lok leigutíma en það hafi verið í við upphaf leigutíma. Leigusalinn ætti ekki að hagnast á viðgerðum.

Bentu leigjendurnir á að ástandsskoðunin hafi farið fram sex vikum eftir að þeir fluttu út. Þeir hafi ekki getað verið viðstaddir og þar að auki hafi aðrir leigjendur verið fluttir inn sem gætu hafa borið ábyrgð á skemmdunum.

Vildi leigusalinn meina að þetta breytti engu. Parketið hafi verið skoðað við lok leigutímans og svo aftur í ástandsskoðuninni sex vikum síðar og í bæði skiptin hafi það komið skýrt fram að för eftir pinnahæla væru út um allt parketið.

Leigjendurnir andmæltu þessu og sögðu förin aðeins á afmörkuðum svæðum en ekki út um alla íbúð.

Helmingur

Eins og áður kom fram samþykktu leigjendurnir að leigusalinn myndi halda eftir um 65.000 krónum af tryggingunni vegna skemmda á svalalokun en leigusalinn krafðist tryggingarinnar í heild sinni sem var 560.000 krónur.

Kærunefnd húsamála segir í sinni niðurstöðu að samkvæmt úttektinni sem var gerð í september 2025, um 6 vikum eftir leigjendurnir fluttu út, hafi verið lítil göt eftir pinnahæla sjáanleg um alla íbúð. Hafi úttektaraðilinn haft til samanburðar myndir sem voru teknar við upphaf leigutíma. Hafi hann talið að ekki væri um eðlileg slit á gólfefni að ræða og mælt með því að parketið yrði slípað og lakkað upp á nýtt. Leigjendurnir hafi viðurkennt að skemmdir hafi orðið á gólfefni vegna pinnahæla með því að neita að för eftir pinnahælana væru um alla íbúð heldur eingöngu á afmörkuðum svæðum.

Hins vegar tekur nefndin undir það með leigjendunum að það sá ekki sanngjarnt að þeir greiði allan kostnað við slípun og lökkun á parketinu eins og það leggur sig. Horfa verði einnig til þess hversu langt var frá því að leigjendurnir fluttu út og þar til ástandsskoðunin fór fram. Í millitíðinni hefðu nýir leigjendur flutt inn í hana auk þess sem skoðunarmaður hafði til samanburðar aðeins myndir sem voru teknar við upphaf leigutíma en ekki lok hans. Verði því að líta svo á að óvissa sé um umfang skemmdanna sem leigjendurnir beri ábyrgð á. Þar að auki verði að horfa til þess að einungis lægi fyrir kostnaðarmat sem leigusalinn hafi útvegað einhliða.

Telur nefndin hæfilegt að leigjendurnir greiði 50 prósent af áætluðum viðgerðarkostnaði samkvæmt fyrirliggjandi mati eða 267.840 krónur sem fallist sé á að leigusalinn ráðstafi af tryggingarfénu. Það sem eftir standi af tryggingunni þurfi leigusalinn að endurgreiða leigjendunum með vöxtum og dráttarvöxtum.

Segja má því að skórnir með pinnahælunum hafi líklega kostað leigjendurna mun meira en verðið sem greitt var fyrir þá þegar þeir voru keyptir en mögulega hjálpa vextirnir og dráttarvextirnir til við að milda höggið.

 

 

#dýrkeyptir #leigjendum #pinnahælar #reyndust


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/7/pinnahaelar-reyndust-leigjendum-dyrkeyptir/

📰 Aðrar fréttir

Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 0
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 0
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 0
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 1
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
Greint er frá ráðningunni á heimasíðu Súðavíkurhrepps og segir þar að undanfarin ár hafi Elísabet starfað sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá Fiskvi...
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
Paul Watson samtökin segjast hafa strax orðið við beiðni Landhelgisgæslunnar um að senda tilkynningar um staðsetningu Bandero á klukkutíma fresti með ...
Gólfhiti í nýjum húsum skapar kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér
📅 29.06.2026 👁️ 1
Gólfhiti í nýjum húsum skapar kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér
Gólfhiti í nýjum húsum virðist skapa kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér, segir meindýraeyðir.„Fólk er alltaf jafnsvekkt þegar það hrin...
Domestic murder sentence could see 10-year sentence increase
📅 29.06.2026 👁️ 1
Domestic murder sentence could see 10-year sentence increase
The changes mean the 15-year starting sentence could be increased to 25 years to be in line with other murders.
Refugees will be told to repay £10,000 under new asylum rules
📅 29.06.2026 👁️ 1
Refugees will be told to repay £10,000 under new asylum rules
Ministers will be given powers to recover costs from adults who have received asylum support under new laws.
Long-delayed defence investment plan to be published on Tuesday
📅 29.06.2026 👁️ 1
Long-delayed defence investment plan to be published on Tuesday
The defence investment plan will set out how billions will be spent on equipping the UK Armed Forces.
Long-delayed defence investment plan to be published
📅 29.06.2026 👁️ 0
Long-delayed defence investment plan to be published
The defence investment plan will set out how billions will be spent on equipping the UK Armed Forces.
Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum - Vísir
Í byrjun júní samþykkti Alþingi frumvarp um háskólasamstæður, lög sem öðlast gildi þann 1. júlí. Háskóli Íslands verður þannig að samstæðuháskóla og f...
Wimbledon 2026 resuts: Naomi Osaka dazzles in kimono outfit before opening victory
📅 29.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026 resuts: Naomi Osaka dazzles in kimono outfit before opening victory
Naomi Osaka has long been renowned for dazzling crowds with her on-court outfits - but making that compatible with Wimbledon's all-white dress code re...
Lést af völdum al­næmis - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lést af völdum al­næmis - Vísir
Daveigh Chase lést fyrr í þessum mánuði og að sögn umboðsmanns hennar hafði hún látist af völdum blóðsýkingar í kjölfar heilahimnubólgu. Hins vegar ha...
Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá - Vísir
Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, hefur fylgt skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir síðan í gærkvöldi innan íslenskrar lögsögu...
Al­þjóð­legi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmti­legt“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Al­þjóð­legi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmti­legt“ - Vísir
Af hverju eruði að drullumalla í dag? „Af því það er drullumallsdagurinn í dag,“ sagði ein á leikskólanum Hofi. Hárrétt. Alþjóðlegi drullumallsdagurin...
Svarthöfði skrifar: Útibú Sjálfstæðisflokksins gefur út smásögu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Útibú Sjálfstæðisflokksins gefur út smásögu
Út er komin ný smásaga Viðskiptaráðs um hrakfarir ríkisstjórnarinnar á liðnum þingvetri. Svarthöfða virðist talsmaður útgáfunnar einkar vel fallinn ti...
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn
Lögreglu grunar að þeir sem voru að baki kannabisræktun í Reykholti hafi staðið að tveimur öðrum slíkum ræktunum sem voru stöðvaðar á suðvesturhorninu...
Fjar­lægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Fjar­lægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás - Vísir
Gabriel Garland, 24 ára keppandi í Love Island, var fjarlægður úr nýjustu þáttaröð raunveruleikaþátta sjónvarpsstöðvarinnar ITV en hann kom fram í þæt...
Daveigh Chase, The Ring and Lilo & Stitch star, died of Aids
📅 29.06.2026 👁️ 1
Daveigh Chase, The Ring and Lilo & Stitch star, died of Aids
Substance abuse was listed as another significant condition the former child star was experiencing.
Lilo & Stitch star Daveigh Chase's cause of death was Aids
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lilo & Stitch star Daveigh Chase's cause of death was Aids
The actress, who also crawled out of a TV in horror film The Ring, passed away in LA this month, aged 35.
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela
📅 29.06.2026 👁️ 1
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela
Helen Hafgnýr Cova, rithöfundur og útgefandi, kom hingað til lands frá Venesúela árið 2016. Hún segir að erfitt hafi verið að ná í ættingja og vini þa...
„Þetta eru pjöllu-klútar“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Þetta eru pjöllu-klútar“ - Vísir
Það var líf og fjör á Þingvöllum og gestir í miklum gír. Gugga spurði þá að ýmsum spurningum, þar á meðal hvort þeir gætu nefnt aðra meðlimi Kaleo á n...
Burnham boðar nýja tíma: „Nr. 10 Norður verður miðpunktur“
📅 29.06.2026 👁️ 1
Burnham boðar nýja tíma: „Nr. 10 Norður verður miðpunktur“
Andy Burnham ætlar að leiða tíu ára verkefni til að auka lífsgæði í Bretlandi og ætlar að gera útibú fyrir embætti forsætisráðherra í Manchester. Þett...
Sjö­tti lést af sárum sínum á sjúkra­húsi - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Sjö­tti lést af sárum sínum á sjúkra­húsi - Vísir
Hin látnu voru öll starfsmenn æskulýðsmiðstöðvarinnar samkvæmt umfjöllun BBC. Fimm þeirra voru skotin til bana í miðstöðinni en sjötta fórnarlambið lé...
Stóru skriðjöklarnir rýrna mest
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stóru skriðjöklarnir rýrna mest
Flestir jökulsporðar íslenskra jökla hörfuðu á jökulárinu 2024–2025 samkvæmt mælingum sjálfboðaliða Jöklarannsóknafélagsins. Breytingin er einna mest ...
Will Andy Burnham's devolution plan raise economic growth?
📅 29.06.2026 👁️ 1
Will Andy Burnham's devolution plan raise economic growth?
BBC Verify has looked at what impact further devolution could be expected to have on the UK.
Svavar Páls­son ráðinn sveitar­stjóri Húnabyggðar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Svavar Páls­son ráðinn sveitar­stjóri Húnabyggðar - Vísir
Greint er frá ráðningunni á vef Húnabyggðar en þar segir að Svavar sé fæddur og uppalinn á Blönduósi. Hann hafi gegnt starfi sýslumanns á Norðurlandi ...
Hitamet falla ítrekað í Evrópu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Hitamet falla ítrekað í Evrópu
Að minnsta kosti 1.300 dauðsföll er hægt að rekja til hitabylgjunnar í Evrópu síðustu daga. Þetta fullyrðir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Aftur er spáð...
„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir
„Þegar hún sá hann [hnífinn] nefndi hún að það hefði ekki verið það sem hún hafði hugsað sér. En hún hafði ekki um annað að velja,“ sagði Ming fyrir d...
„Reiðubúnir að leggja lífið að veði“
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Reiðubúnir að leggja lífið að veði“
Leiðangursstjóri á Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, segir skipverja tilbúna að vera eins lengi og þörf er á við Íslandsstrendur til að stöðva hv...
Lönduðu tveimur langreyðum
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lönduðu tveimur langreyðum
Hvalveiðiskipið Hvalur 9 landaði tveimur langreyðum í hvalstöðinni í Hvalfirði laust fyrir klukkan 18 í dag.Samkvæmt mbl.is hafa níu dýr verið veidd á...
Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum - Vísir
Greint er frá ráðningunni á vef Stjórnarráðsins. Þar er greint frá því að Margrét Kristín hafi verið skipuð aðstoðarlögreglustjóri við embættið árið 2...
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ - Vísir
Sigurjón segir að ef Íslendingar fari með óbreytt kerfi inn í Evrópusambandið sé ekkert sem komi í veg fyrir að erlend fyrirtæki geti keypt upp „íslen...
Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug - Vísir
„Þetta er orðið gott í þeirri mynd sem þetta er núna,“ segir Dagur Torfason, landeigandi að Fossalaug og Reykjafossi, í samtali við fréttastofu. Landi...