Jón Magnússon skrifar:
Þær Inga Sæland og Þorgerður Katrín virðast hafa náð að smita Kristrúnu Frostadóttur af því að láta skyldustörf ekki koma í veg fyrir að haldið sé gott partý. Þegar Inga Sæland og nánustu vildarmenn hennar og samráðherrar höfðu svolgrað í sig dýrustu páskaeggin á markaðnum í boði skattgreiðenda sérútbúin fyrir Ingu Sæland, bauð Kristrún þeim Ingu og Þorgerði í pístupartý þó að skyldan kallaði og margt merkilegra væri hægt að gera fyrir land og þjóð.
Fyrr um daginn héldu Grindvíkingar borgarafund til að ræða framtíð Grindavíkur og buðu forsætisráðherra sem afþakkaði með tveggja daga fyrirvara vegna anna þó ekki liggi fyrir hverjar þær annir voru umfram að að undirbúa partíið.
Allt er þetta klaufalegt og óviðurkvæmilegt af forsætisráðherra, sem sendi ekki einu sinni þar til bæran fulltrúa sinn til að vera viðstaddur fundinn og færa fundarmönnum kveðju forsætisráðherra og upplýsa Grindvíkinga um afstöðu forsætisráðherra til framtíðaruppbyggingar í Grindavík.
Kauðaskapur forsætisráðherra ríður ekki við einteyming í þessu efni og því miður virðist hún vera farin að samsama sig með þeim Ingu og Þorgerði í að láta ekkert koma í veg fyrir að hægt sé að vera í góðu partíi á kostnað skattgreiðenda.
Kristrún svona gerir maður ekki það. Þjóðin hefur ætlast til annars af þér.