Óvenjuöflugt eldingaveður gekk yfir hafið um tvö hundruð kílómetra suður af Íslandi í nótt að sögn Marcels de Vries, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðrið hefur færst til norðausturs að sögn Marcels og er líklega að mestu að fjara út. Ekki hafi borist tilkynningar um að eldingarnar hafi sést úr landi, þótt það sé ekki ólíklegt.
Óvenjuöflugt eldingaveður gekk yfir suður af landinu