Það minnti á einhvers konar vísindaskáldsögu þegar áhrifavaldurinn Frankie Lapenna steig í hringinn í San Francisco á föstudag og mætti þar manngerðu vélmenni í bardaga.Myndskeið úr viðureigninni hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum, enda er vélmennið um 183 sentímetrar á hæð, 85 kíló að þyngd og minnir óneitanlega á T-850 vélmennið úr Terminator með Arnold Schwarzenegger.Fyrirtækið REK stóð fyrir bardaganum og segir í frétt Daily Mail að vélmenninu hafi verið fjarstýrt. Vélmennið sá sjálft um að halda jafnvægi en höggin og spörkin komu úr fjarstýrðum búnaði.
Ótrúlegar senur þegar maður mætti vélmenni í hringnum - Myndband