Varnarmálaráðuneyti Rúmeníu segir tvo hafa særst lítillega eftir að rússneskur dróni skall í nótt á þaki íbúðahúss í hafnarborginni Galati, nærri landamærunum að Úkraínu. Rúmenía er aðili að Atlantshafsbandalaginu.
„Þetta atvik er dæmi um alvarlega og ábyrgðarlausa stigmögnun átaka af hálfu Rússneska sambandsríkisins,“ sagði í yfirlýsingu utanríkisráðuneytis Rúmeníu. Ráðuneytið bætti við að stjórnvöld hefðu upplýst framkvæmdastjóra NATO um atvikið og „beðið um að fá umsvifalaust tæki til að stöðva drónaflug til Rúmeníu“.
Í yfirlýsingu varnarmálaráðuneytisins segir að einn þeirra dróna sem Rússlandsher beiti gegn borgaralegum skotmörkum í Úkraínu hafi villst yfir landamærin með þessum afleiðingum.
Ratsjár hafi fylgst með ferðum flygildisins uns það skall á húsinu og kveikti þar eld sem hafi fljótlega verið slökktur. Tvær F-16 orrustuþotur voru sendar á loft eftir að dróninn fór inn fyrir lofthelgi Rúmeníu.
Þetta var í fyrsta sinn sem rússneskur dróni hæfði íbúðarhús í Rúmeníu frá upphafi innrásarstríðsins þótt þeir hafi tugum skipta farið inn fyrir lofthelgina. Loftvarnarflautur ómuðu um alla Úkraínu í nótt og fram undir morgun vegna yfirvofandi loftárása Rússa.
Rússneski landstjórinn í Donetsk segir minnst þrjá hafa verið drepna í drónaárás Úkraínuhers í nótt og nokkra til viðbótar særst. Drónum var einnig beint að rússneska héraðinu Volgogrod án þess að nokkurn sakaði.
Fréttin var uppfærð með viðbrögðum rúmanska utanríkisráðuneytisins um stigmögnun af hálfu Rússa.