Í hádegisfréttum verður rætt við stjórnarmann í Járngerði, hagsmunasamtökum Grindvíkinga sem gagnrýnir stjórnvöld fyrir seinagang í málinu.
Einnig verður rætt við framkvæmdastjóra Festu sem segir mikil samlegðaráhrif á milli sjálfbærni og þess verkefnis að draga úr verðbólgu hér á landi.
Undirbúningur fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu er að komast á fullt. Við heyrum í framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar sem hvetur almenning til að vera vakandi fyrir erlendum aðilum sem reyna að hafa áhrif á umræðuna.
Í sportinu verður farið yfir landsleikina í fótbolta sem háðir voru í gær þar sem Ísland lá fyrir heimsmeisturum í kvenna- og karlaflokki.