„Það verður alveg örugglega mikil stemning hjá okkur í kvöld í Reykholtskirkju,“ segir Helgi Svavar Helgason, trommari íslensku reggísveitarinnar Hjálma.
„Í gær voru bara örfáir miðar eftir svo það er greinilega vinsælt að fá tónlistarmenn til að spila,“ segir hann. Í vor hefur verið tónleikaröð í kirkjunni og hafa bæði þungarokksveitin HAM og KK spilað og nú koma Hjálmar með karabísku stemninguna í Reykholt.
Helgi Svavar segir að óhjákvæmilega setji menn sig í ákveðnar stellingar þegar spilað er í húsi Drottins. „Já, ég hugsa að við verðum á rólegri nótunum, en ég hlakka mikið til að heyra hljóminn í kirkjunni og þetta verður örugglega magnað að spila þarna fyrir 250 manns.“
Fólk sækir í lifandi tónlist
Þótt reggítónlistina megi rekja til Karíbahafsins og margir tengi hana fyrst og fremst við Jamaíka og þekktasta tónlistarmann þeirra, Bob Marley, þá er íslenska reggíið komið til að vera og hefur í meðförum Hjálma blandast saman við þjóðlagatónlist og blús og er þannig orðin þeirra séríslenska reggí. „Við setjum okkar hjartslátt inn í reggíið,“ segir Helgi Svavar sem sér náttúrlega um taktinn við trommurnar, ásamt Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni sem leikur á bassa.
Guðmundur Kristinn Jónsson, gítarleikari Hjálma sem er alltaf kallaður Kiddi Hjálmur, segir að það sé alltaf gaman að spila reggí og þótt Hjálmar séu fyrsta íslenska reggíbandið segir hann fleiri spila reggískotna tónlist.
„Þetta er svo skemmtileg tónlist og fólk sækir í þessa stemningu sem fylgir henni,“ segir hann og bætir við að eftir tónleikana í kvöld leggi Hjálmar land undir fót og fari til Akureyrar þar sem þeir spila á Græna hattinum annað kvöld, 30. maí, og svo spili þeir á Ægi í Hafnarfirði fyrstu helgina í júní, bæði föstudags- og laugardagskvöld. „Það er alltaf gaman að spila á þessum stöðum og skemmtilegt að vera í þessari nánd við tónleikagestina.“
Góður vettvangur fyrir sögur
Flest lög Hjálma koma úr smiðju Þorsteins Einarssonar, sem bæði syngur og spilar á gítar. Svo á Sigurður Guðmundsson sem leikur á orgel líka talsvert af lögum. Helgi Svavar segir að reggítónlist geti bæði verið þægileg og taktföst en líka sé hún góður vettvangur fyrir alls konar lög. „Hún höfðar til mjög breiðs hóps og hentar vel til að segja alls konar sögur. Við viljum vera svolítið á þessu óræða rófi, svo hver og einn geti túlkað lögin sjálfur,“ segir hann.
Hjálmar hafa starfað frá árinu 2004 og eru því 22 ára í ár. Kiddi Hjálmur segir að það sé alltaf gaman að hittast og spila saman og núna eru þeir að vinna í nýrri plötu.
„Við erum að taka upp plötu í Hljóðrita í Hafnarfirði, elsta stúdíói landsins. Hún kemur út í haust og er tíunda plata sveitarinnar. Við erum á lokametrunum í upptökunum,“ segir Helgi Svavar.
