Örlaganótt á Kiki varð að ást um ó­komna tíð - Vísir

Örlaganótt á Kiki varð að ást um ó­komna tíð - Vísir

Örlaganótt á Kiki varð að ást um ó­komna tíð - Vísir

Strákarnir klæddust báðir bláum jakkafötum úr sitt hvorum litatóninum en allar konurnar fengu fyrirmæli um að mæta í hvítu, sem kom ansi skemmtilega út. 

Erlingur vinnur sem starfsnámsnemi í Seljaskóla en David er stærðfræðingur og barþjónn á Sjávargrillinu. Örlögin gripu heldur betur í taumana þegar David skellti sér í skólaferð til Íslands og þeir vissu fljótt að þarna höfðu þeir fundið stóru ástina í sínu lífi. Blaðamaður ræddi við þá um stóra daginn, fyrstu kynni og ástina.

Strákarnir með dragdrottningunni sem spilaði veigamikið hlutverk í athöfninni.Rhea Jill

Hvað eruð þið búnir að vera saman lengi?

Við erum búnir að vera saman í fjögur ár. Við kynntumst þegar David var ferðamaður á Íslandi og hann var í skólaferð á vegum Western Michigan University. Við kynntumst örlagaríka nótt á Kiki 6. maí 2022, tveimur dögum fyrir afmælið mitt, Erlings. 

Þrátt fyrir lítinn tíma og takmörkuð tækifæri til þess að hittast restina af ferð Davids þá gripum við hverja gæs og áttum þrjú kvöld saman, tengingin var mjög sterk. David bauð mér, Erlingi, að koma til Michigan í Ágúst og tók ég tilboðinu.

Erlingur og David á Íslandi stuttu eftir að þeir kynntust.Aðsend

Við enduðu á því að fara í road-trip í kringum Lake Michigan, þar sem við urðu ástfangnir, en bílferðin tekur um 26 tíma og var það yfir marga daga. Það var vissulega ákveðin áhætta fyrir að fara út í þetta ævintýri með manni sem ég hafði einungis hitt þrisvar í persónu. En maður tapar bara þeim skotum sem maður tekur ekki og í versta falli hefði bara myndast vinskapur út úr þessu.

Í þessari ferð, í Green Bay Wisconsin, kynnumst við dragdrottningunni sem kom fram í brúðkaupsveislunni. Við urðum dolfallnir fyrir henni og tölum við hana eftir showið, en þá kemur í ljós að þetta var í annað skiptið sem hún kom fram. 

Strákarnir á ferðalaginu um Lake Michigan.Aðsend

Fjórum árum síðar hefur hún vaxið mikið á sviði drags í Wisconsinfylki, við héldum bandi á Facebook og fannst frábært að fá hana til þess að koma fram í brúðkaupsveislunni. Hún er stór hluti af okkar upphafi og okkar sögu.

Við byrjum saman eftir ferðina og hefst ár af fjarsambandi, mörgum flugferðum og óvissu. David flytur til Íslands í nóvember 2023 á atvinnuleyfi, sem var heljarinnar vinna, en við vildum búa saman áður en við tækjum ákvörðun um að gifta okkur. Svo giftum við okkur, bæði fyrir ástina og stöðugleikann, 10. júlí 2025. David stefnir á ríkisborgararétt og líf á Íslandi næstu árin.

David, til hægri, flutti til Íslands árið 2023.Anna Hulda Sigurðardóttir

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við vorum í raun ekki með neina trúlofun heldur áttum við hjartnæmt samtal um framtíð okkar. Við giftum okkur hjá Sýslumanni 10. júlí í garði foreldra minna, það var mjög hógvær stund. 

1. ágúst var langþráður fögnuður þar sem báðar fjölskyldur sameinast.
Frá vinstri, Greg Brooks, pabbi Davids, David, Heiðdís Sigurðardóttir, móðir Erlings, Erlingur Sigvaldason og Derek Brooks, móðir Davids.Rhea Jill

Hvað voruð þið búnir að vera lengi að skipuleggja þetta?

Við höfum undirbúið stóra daginn í tæpt ár. Undirbúningurinn var að mestu leyti í höndum móður Davids og var það unnið þvert á landamæri í ótal myndsímtölum á milli Michigan og Íslands.

Erlingur og David í Pictured Rocks, á leið sinni í kringum Lake Michigan í ágúst 2022. Þeir voru í ár að skipuleggja brúðkaupið og fengu mikla aðstoð frá móður Davids.Aðsend

Hvar hélduð þið giftingu?

Í ráðhúsi Novi-borgar í Michigan. 

Athöfnin fór fram í ráðhúsi Novi.Rhea Jill

Hvernig var stóri dagurinn?

Giftingardagurinn var frábær, við undirbjuggum athöfnina en hún var óvenjuleg. Við þurftum að undirbúa athöfn með dragdrottningu sem var hluti af showinu.

Dragdrottningin tók stóran þátt í athöfninni.Rhea Jill

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Við vorum sammála um helstu atriði, en David vildi sérstaklega fá dragdrottningu í athöfnina og náði hann að sannfæra mig um að það yrði ógleymanlegt, sem það reyndist einmitt verða.

Dragdrottningin tók meðal annars lagið Where the hell is my husband? með tónlistarkonunni Raye. Rhea Jill

Hvað fannst ykkur mikilvægast?

Að sameina fjölskyldur okkar sem munu ekki fá mörg tækifæri til að hittast þegar haf aðskilur þær. Foreldrum Davids þótti dýrmætt að fá að kynnast Íslendingunum og fá góða innsýn í það góða fólk sem David er umvafinn.

Erlingur og David giftu sig upphaflega á Íslandi og biðu spenntir eftir því að geta sameinað allt sitt fólk með stórri veislu úti.Anna Hulda Sigurðardóttir

Hvernig gekk að velja fötin og hvaðan sóttuð þið innblásturinn fyrir það?

Við völdum jakkaföt hjá jakkafataleigu og var ákveðið að ég yrði í dökkbláum jakkafötum þar sem ég er ljósari yfirlitum og David í ljósbláum jakkafötum þar sem hann er með dekkra hár.

Strákarnir glæsilegir. Rhea Jill

Fengu gestir einhverjar leiðbeiningar fyrir klæðaburð?

Þar sem engin brúður var í þessu brúðkaupi þá fengu konur þau fyrirmæli að mæta í hvítu, sem er yfirleitt harðbannað í hefðbundnum brúðkaupum.

Allar konur klæddust hvítu!Rhea Jill

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Við tókum innblástur frá okkar persónuleikum. Við erum hvorugir þeir alvörugefnustu og vildum ná að fanga það í veislunni og fögnuðinum. Við vorum ekki að ofhugsa smáatriði, þar sem að við vissum værum umkringdir stórkostlegu fólki og samveran var það sem myndi alltaf standa upp úr.

Æskuvinir Erlings, þeir Vilhjálmur Jón Elfarsson og Hrannar Helgi Auðunsson, prentuðu út boli í tilefni dagsins.Aðsend

Hvað stendur upp úr?

Það var mjög áberandi hvað Íslendingar og Michiganbúar ná vel saman og ná persónuleikar og húmor vel saman. Það var sérstaklega úthugsað hvernig hægt yrði að blanda hópunum saman. Við vorum með „Meet and greet“ á föstudeginum þar sem að bingó fólksins var spilað, bingó þar sem fólk þarf að tala saman. 

Í veislunni sjálfri á laugardeginum var spurningakeppni Davids og Erlings sem dragdrottningin hélt og þar var skilyrði að einn Íslendingur sé í hverju liði þar sem að spurningarnar reiddu sig á þekkingu beggja landa.

Besta ráðið sem við fengum svo frá brúðkaupsgesti var það að í rifrildi þá hefur eiginmaðurinn alltaf rétt fyrir sér.
Íslendingar í Meet and Greet - veislunni Frá vinstri, Ingvar Þóroddsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Vilhjálmur Jón Elfarsson, Hrannar Helgi Auðunsson og Haukur Árnason.Aðsend

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Ellah Maeaux, dragdrottningin sem við kynntumst í Wisconsinfylki fyrir fjórum árum, kemur inn og truflar athöfnina þegar vinkona Davids sem gaf okkur saman spyr hvort að það séu einhver mótmæli. 

Hún kom fram við mashup af okkar uppáhalds Taylor Swift-lögunum, Speak Now, sem var viðeigandi á þessum tímapunkti í athöfninni, og Paper Rings.

Síðar sá hún um spurningakeppni og kom aftur fram við lagið Where the hell is my husband með Raye.

Dragdrottningin sló algjörlega í gegn.Rhea Jill

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Það sem kom á óvart var það hversu móttækilegir þeir gestir voru sem voru íhaldssamir og ekki vanir að umgangast dragdrottningar og hommakúltúr. 

Það sýnir hreinlega að í gegnum raunverulega væntumþykju þá verður þú móttækilegur fyrir öllu. 

Pabbi Davids, sem er 65 ára, hafði aldrei séð eða hitt dragdrottningu áður. Hann vissi að þetta var það sem sonur hans vildi og studdi hann að sjálfsögðu í því. 

Þrátt fyrir aldur og takmarkaða þekkingu þá voru hann og fleiri gestir mjög kurteisir við dragdrottninguna og okkur brúðgumana og skemmtu sér konunglega.

Stuð í bílnum með pabba Davids!Aðsend

Hvað voru margir gestir?

Sextíu Bandaríkjamenn og tuttugu Íslendingar.

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Alls ekki ofhugsa smáatriði, ef þú ert umvafinn frábæru fólki sem elskar þig þá eru samveran og veisluhöldin alltaf að fara að vera frábær.

David og Erlingur í Green Bay Wisconsin þar sem þeir kynntust dragdrottningunni árið 2022. Fjórum árum síðar voru þau öll saman í giftingunni. Gleðin var í fyrirrúmi á stóra deginum og þeir segja mikilvægt að sleppa tökum á smáatriðunum.

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Við fengum að lenda hægt og rólega þar sem Íslendingar fóru ekki allir beint heim, stór hluti fór heim á mánudeginum en nokkrir voru áfram og fóru heim á þriðjudegi. Þá gafst færi á að halda stórkostlega en minni Íslendingasamkomu og kveðja alla hægt og rólega. 

Við erum ótrúlega þakklátir og meyrir yfir því hvað við eigum mikið af góðu fólki, sérstaklega fólk sem er tilbúið að mæta í áfangastaðabrúðkaup til Novi, Michigan af öllum stöðum.

#kiki #varð #ást #ókomna #örlaganótt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262917372d/orlaganott-a-kiki-vard-ad-ast-um-o-komna-tid

📰 Aðrar fréttir

Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens Frederik Nielsen formaður grænlensku landstjórnarinnar hafa nú un...
Spyr hvern verkfallið eigi að bíta og stingur upp á nýrri útfærslu
📅 22.09.2026 👁️ 1
Spyr hvern verkfallið eigi að bíta og stingur upp á nýrri útfærslu
Gunnar Ármannsson lögmaður spyr hvern yfirvofandi verkfall flugvirkja hjá Icelandair eigi að bíta og segir það munu bitna helst á aðilum sem ekki geta...
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
📅 22.09.2026 👁️ 1
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
Hörður Lilliendahl, varðstjóri í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu gera sitt besta til að sporna við hraðaakstri. Ungt fó...
„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni en tilefnið eru orð Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra á blaðamannafundi ...
Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi - Vísir
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí en var fyrst birtur síðdegis í dag. Lögreglan ákærði manninn fyrir kynferðisbrot með því að hafa í októb...
Bróðir Díönu varpar fleiri sprengjum um konungsfjölskylduna - „Þetta er orðrétt eftir honum haft“
📅 22.09.2026 👁️ 2
Bróðir Díönu varpar fleiri sprengjum um konungsfjölskylduna - „Þetta er orðrétt eftir honum haft“
Væntanleg bók jarlsins Charles Edward Maurice Spencers er ekki enn komin í hillur bókabúðanna en hefur þegar vakið gríðarlega athygli en þar fjallar h...
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu
📅 22.09.2026 👁️ 2
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja konu frá Afríkuríki og barni hennar um alþjóðlega vernd. Hafði konan ...
Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
📅 22.09.2026 👁️ 1
Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar. Miðað við þær eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásæ...
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
📅 22.09.2026 👁️ 1
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Meðal umræðuefna hans va...
Bókun 35 komin fram á þingi
📅 22.09.2026 👁️ 1
Bókun 35 komin fram á þingi
Frumvarp um bókun 35 hefur enn og aftur verið lagt fram á Alþingi. Ríkisstjórnin er staðráðin í að klára málið í þetta sinn en frumvarpið var fyrst la...
Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka - Vísir
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að ríkisstjórnin hafi í dag fjallað um niðurstöður þess hluta endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík s...
Flestir fé­lagar vilji frekari kjara­bætur vegna forsendubrests - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Flestir fé­lagar vilji frekari kjara­bætur vegna forsendubrests - Vísir
Ný kjarakönnun hjá félagsfólki Fagfélaganna, sem samanstendur af RSÍ, VM og MATVÍS, sýnir að sjötíu prósent svarenda hafi ekki fengið kjarabætur umfra...
Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur
📅 22.09.2026 👁️ 1
Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur
Í Finnlandi breytti símabann í skólum öllu á mettíma. Börnin eru glaðari og námsárangur betri. Það er mikið að gerast í menntamálunum á vakt Ingu Sæla...
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð
📅 22.09.2026 👁️ 1
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðust...
Plot targeting Manchester's Jewish community disrupted, say police
📅 22.09.2026 👁️ 1
Plot targeting Manchester's Jewish community disrupted, say police
Two men were arrested over a suspected terrorist plot to target the Jewish community, police say.
Plot targeting Manchester Jewish community disrupted, say police
📅 22.09.2026 👁️ 1
Plot targeting Manchester Jewish community disrupted, say police
Two men were arrested in Manchester on Sunday, say counter-terror police.
Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali AFP fréttaveitunnar við Kristján, sem ekki hefur gefið Vísi kost á viðtali síðustu vikur. Hanna Katrín Fr...
Ed Davey promises tax cuts for millions if UK rejoins EU single market
📅 22.09.2026 👁️ 2
Ed Davey promises tax cuts for millions if UK rejoins EU single market
The Lib Dem leader vows to raise tax thresholds if he becomes PM, in a speech to his party conference.
Halda and­stæðingum fjarri Græn­landi með sam­komu­lagi - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Halda and­stæðingum fjarri Græn­landi með sam­komu­lagi - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Fredrik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, staðfestu samkomul...
Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind - Vísir
Þess er getið í helstu erlendum miðlum að forsetinn hafi haldið sig við marga kunnuglega talpunkta í ræðunni. Hann ítrekaði meðal annars rétt landa ti...
Mælistikan á lofti
📅 22.09.2026 👁️ 1
Mælistikan á lofti
Mælistikan á lofti Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Nýtt eld­hús eft­ir máli eft­ir Frið­geir Ein­ars­son, sem sýnt er í Kass­an­um í Þjóð­leik­hús...
Earl Spencer apologises to Piers Morgan over error in book
📅 22.09.2026 👁️ 2
Earl Spencer apologises to Piers Morgan over error in book
The BBC understands the book's publisher, Penguin, will be amending the inaccuracy in future editions of the book.
Spencer's book should be pulled from shelves, Piers Morgan says
📅 22.09.2026 👁️ 1
Spencer's book should be pulled from shelves, Piers Morgan says
The BBC understands the book's publisher, Penguin, will be amending the inaccuracy in future editions of the book.
Fer í mál við stjórnvöld ef til hvalveiðibanns kemur
📅 22.09.2026 👁️ 1
Fer í mál við stjórnvöld ef til hvalveiðibanns kemur
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segist stefna íslenska ríkinu fyrir dómstóla verði hvalveiðibanni komið á. Frumvarp þess efnis verður lagt fra...
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu
📅 22.09.2026 👁️ 2
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu
Fjölskylduráð Múlaþings ákvað á dögunum að hækka heimgreiðslur til foreldra úr 52.153 krónur á mánuði í 104.500 krónur. Þetta er gert til þess að mæta...
'Looksmaxxing' influencer 'Clavicular' charged with rape in Massachusetts
📅 22.09.2026 👁️ 1
'Looksmaxxing' influencer 'Clavicular' charged with rape in Massachusetts
Authorities allege Braden Peters drugged a woman before assaulting her in May. He denies the charges.
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
📅 22.09.2026 👁️ 1
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
Dánarorsök bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere liggur nú fyrir, rúmum mánuði eftir að hún fannst látin í íbúð í Greenville í Suður-Karólínu. Hún...
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting
📅 22.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Er fjármunum sem varið er til velferðar og geðheilbrigðismála óþarfa eyðsla eða fjárfesting?Fjármálaráð hefur ...
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði
📅 22.09.2026 👁️ 2
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði
Tveir pólskir menn eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á manndrápi í Vallargerði þann 9. ágúst. Mennirnir voru áður í gæsluvarðhaldi er...
Jóhannes Haukur segist hafa fagnað samtali áður en appið kom til: „Hvað eyðir Reykjavíkurborg í þetta?“
📅 22.09.2026 👁️ 1
Jóhannes Haukur segist hafa fagnað samtali áður en appið kom til: „Hvað eyðir Reykjavíkurborg í þetta?“
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson vakti á sunnudag athygli á appinu Læsir, sem heldur utan um heimalestur dóttur hans og annarra nemenda. Segir ha...
Umburðarlyndi músliminn
📅 22.09.2026 👁️ 1
Umburðarlyndi músliminn
Umburðarlyndi músliminn Fréttin22. september 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Breski biskupinn Sarah Mullally er fyrsta konan til að gegna leiðtogahl...
Breyttu úrskurði um nokkur atkvæði
📅 22.09.2026 👁️ 1
Breyttu úrskurði um nokkur atkvæði
Landskjörstjórn hefur tilkynnt um endanlega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem haldin var 29. ágúst.Þetta...
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn?
📅 22.09.2026 👁️ 1
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn?
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn? Fréttin22. september 2026Innlent, Júlíus Valsson, StjórnmálLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Í þingflokkshe...
Inquest opens into 'Putney Pusher' suspect's death
📅 22.09.2026 👁️ 1
Inquest opens into 'Putney Pusher' suspect's death
Nicholas Brandram, who was suspected of pushing a woman into the path of a bus, was found dead last week.
Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar - Vísir
Nefndin kallaði á fundi sínum í gær eftir upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar um fjárhagsaðstoð frá og með árinu 2016. Hún vill fá upplýsingar ...
Prentmet Oddi tekur yfir rekstur Héraðsprents og útgáfu Dagskrárinnar
📅 22.09.2026 👁️ 1
Prentmet Oddi tekur yfir rekstur Héraðsprents og útgáfu Dagskrárinnar
Prentmet Oddi tilkynnti í dag um að þeir hefðu tekið yfir rekstur Héraðsprents á Egilsstöðum. Héraðsprent var stofnað árið 1972 og hefur því verið sta...
Þjóðvegur 1 lokaður á kafla í Borgarfirði í nótt
📅 22.09.2026 👁️ 2
Þjóðvegur 1 lokaður á kafla í Borgarfirði í nótt
Þjóðvegur 1 verður lokaður á kafla í Melasveit í Borgarfirði frá tíu í kvöld til klukkan átta í fyrramálið. Hringveginum verður lokað vegna ræsagerðar...
Autopsy shows Hayden Panettiere died from overdose of fentanyl and other drugs
📅 22.09.2026 👁️ 1
Autopsy shows Hayden Panettiere died from overdose of fentanyl and other drugs
The death of the child star - who had fentanyl, Xanax, a muscle relaxant and antipsychotic medication in her system - was ruled an accident.
Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka nú kæru vegna þingkosninganna sem fóru fram á sunnudag fyrir rúmri viku. Kjósendur í Dölunum í Norður-Svíþjóð eru sagðir hafa ...
Suspected drug dealer arrested after police seize 4 kilos of cocaine in Lanzarote
📅 22.09.2026 👁️ 1
Suspected drug dealer arrested after police seize 4 kilos of cocaine in Lanzarote
A man has been remanded in custody after police seized around four kilos of cocaine and €25,000 in cash during a major drugs operation in Lanzarote.Na...
Police seize 4kg of cocaine and find €25,000 hidden in a freezer
📅 22.09.2026 👁️ 1
Police seize 4kg of cocaine and find €25,000 hidden in a freezer
Police in Lanzarote have seized approximately four kilograms of cocaine and €25,000 in cash during an operation targeting the distribution of the drug...
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
📅 22.09.2026 👁️ 2
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
Nýtt varnarsamkomulag á milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna verður undirritað í dag þegar Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-...
Tim Westwood charged with two more sexual offences
📅 22.09.2026 👁️ 1
Tim Westwood charged with two more sexual offences
The alleged sexual offences date back to 1991 and 2004.
Bein út­sending: Ræða Trumps á alls­herjar­þinginu - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Ræða Trumps á alls­herjar­þinginu - Vísir
Mikil ólga er nú innan Sameinuðu þjóðanna, eins og víða um heiminn allan. Þá eru einnig uppi spurningar um framtíð Sameinuðu þjóðanna, þar sem Trump h...
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld
📅 22.09.2026 👁️ 1
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld
Um eitt þúsund farþegar Icelandair sem eiga að fljúga frá Bandaríkjunum til Evrópu í kvöld, með millilendingu á Íslandi, verða endurbókaðir í flug með...
Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi?
📅 22.09.2026 👁️ 2
Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi?
Þeir stjórnmála- og embættismenn sem hafa séð samninginn sem verður undirritaður í dag hafa haldið spilunum þétt að sér. Það eina sem smitast hefur út...
Trump staðfestir að Bandaríkin vilji tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi
📅 22.09.2026 👁️ 1
Trump staðfestir að Bandaríkin vilji tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi
Donald Trump hefur nú lokið máli sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Nú ætti hann að fara að gera sig kláran til að hitta Dani og Grænlendinga ...
Nielsen: „Win-win-win samningur“
📅 22.09.2026 👁️ 2
Nielsen: „Win-win-win samningur“
Dönsk stjórnvöld hafa birt samninginn á heimasíðu sinni.Hér má nálgast hann.Donald Trump var spurður, eftir undirritunina, hvort hann væri búinn að le...
Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka Pituffik
📅 22.09.2026 👁️ 2
Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka Pituffik
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, er að vonum ánægður með áfangann í dag. „Þetta var krefjandi vegferð. En hér erum við – með samning...
Voru með mikið reiðufé í farangrinum
📅 22.09.2026 👁️ 1
Voru með mikið reiðufé í farangrinum
Tveir erlendir menn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir peningaþvætti. Mennirnir eru með íslenskar kennitölur og eru skráðir til heimilis að Smiðs...