Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði fátt sem skipti máli í umræðum Alþingis um stefnuræðu forsætisráðherra í síðustu viku. Það sem er þó minnisvert úr ræðu hennar er setning sem hún sagði með mikilli áherslu: „Það þarf ekki að laga neitt á Íslandi.“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði í ræðu sinni lagt áherslu á að verkefni núverandi ríkisstjórnar væri að laga á Íslandi það sem úrskeiðis hefur farið, ekki síst vegna sleifarlags þeirrar vinstri stjórnar sem núverandi ríkisstjórn tók við völdum af fyrir tæplega tveimur árum.
Orðið á götunni: „Það þarf ekki að laga neitt á Íslandi“ … að mati formanns Sjálfstæðisflokksins