Besserwisser, eða sjálfviti í íslenskri þýðingu, var fenginn frá útlöndum til að messa yfir hundrað nei-sinnum á vegum samtakanna Áfram Ísland og bókaútgáfunnar AB sem auglýstu viðburðinn með heilsíðum í sínu nafni að því er virðist til að leggja áherslu á að viðburðurinn væri ekki á þeirra vegum. Reynt var að halda fundinn í hátíðarsal Háskóla Íslands í þeim tilgangi að láta fólk fá það á tilfinninguna að Háskóli Íslands væri hallur undir neikvæðu hreyfingarnar á Íslandi.
Orðið á götunni: Erlendur sjálfviti fenginn til að segja Íslendingum að dómgreind þeirra sé ekki treystandi