Baráttan við verðbólgu á Íslandi heldur áfram. Tvær meginorsakir ráða mestu. Annars vegar olíuverð á alþjóðlegum mörkuðum sem hefur áhrif á efnahagsmál um allan heim, einnig á Íslandi. Stríðsrekstur Bandaríkjamanna í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins hefur sprengt upp verð á olíu sem er komið yfir 100 dollara sem þykir afleit staða sem veldur hækkunum á verðlagi um allan heim. Hin meginorsök verðlagshækkana á Íslandi eru innlendar hækkanir á nauðsynjavörum sem því miður virðast æði oft vera umfram tilefni.
Orðið á götunni: Baráttan við verðbólgu: Nú reynir á verðlagseftirlit Samkeppniseftirlitsins