Ófullnægjandi undirbúningur hefur haft neikvæð áhrif á innleiðingu og framkvæmd farsældarlaga. Þetta er niðurstaða stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar.
Lög um farsæld barna tóku gildi í upphafi árs 2022 í ráðherratíð Ásmundar Einars Daðasonar. Markmið þeirra er að tryggja að börn og foreldrar sem þurfa stuðning hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
Óraunhæfar væntingar um aukna farsæld barna
Ávinningsmat sem var unnið í aðdraganda lagasetningarinnar byggir á þeirri forsendu að með farsældarlögunum megi fækka áföllum barna og auka seiglu þeirra með því að bregðast við um leið og þörf fyrir þjónustu kemur upp.
Ekkert í lögunum fjallar þó um að auka þjónustu, stytta bið eða fjölga og bæta úrræði sem þurfa að vera til staðar. Ríkisendurskoðun telur að matið hafi vakið óraunhæfar væntingar um aukna farsæld barna.
Í úttekt Ríkisendurskoðunar má finna sex ábendinar til úrbóta.
Nýjar stofnanir ekki tilbúnar til að takast á við verkefnið
Barna- og fjölskyldustofa og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, sem gegna lykilhlutverkum samkvæmt lögunum, voru settar á fót á sama tíma og lögin tóku gildi. Að mati Ríkisendurskoðunar voru stofnanirnar ekki tilbúnar til að takast á við verkefnið fyrst um sinn og hefur það tafið innleiðingu.
Barna- og fjölskyldustofa hefur lagt áherslu á innleiðingu á fyrsta og öðru stigi þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Innleiðing á þriðja stigi er styttra á veg komin. Enn eru því hópar barna sem njóta ekki samþættrar þjónustu í sama mæli og börn með vægari vanda. Má þar nefna börn með fjölþættan vanda, börn sem glíma við vímuefnavanda, fósturbörn og börn með fötlun. Að mati Ríkisendurskoðunar er þessi staða óviðunandi.
Í úttektinni kemur fram að betur hefði þurft að meta stöðu barna hér á landi í aðdraganda lagasetningarinnar og greina með hvaða hætti helst megi auka farsæld þeirra. Þá var samráð við heilbrigðisráðuneyti í aðdraganda gildistöku laganna ábótavant. Stafrænu kerfi til að halda utan um samþætta þjónustu hefur auk þess ekki verið komið á.
Innleiðing laganna átti að taka fimm ár. Þau verða liðin um næstu áramót en ljóst er að henni verður ekki lokið þá. Ríkisendurskoðun telur ekki að fullu ljóst hve langan tíma til viðbótar muni taka að ljúka henni.