Stálheppinn einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu datt í lukkupottinn þegar hann vann 45,4 milljónir króna í EuroJackpot.Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að vinningshafinn sé á fertugsaldri og búsettur á höfuðborgarsvæðinu.Vinningsmiðinn var keyptur í appinu og í tilkynningunni er haft eftir vinningshafanum að hann hafi opnað appið stuttu eftir útdrátt og séð að hann hefði hlotið vinninginn.Þrátt fyrir það átti hann erfitt með að trúa eigin augum og beið eftir staðfestingarsímtalinu áður en hann leyfði sér að fagna.
Opnaði appið og trúði ekki eigin augum – Íbúi á höfuðborgarsvæðinu vann rúmar 45 milljónir