„Ég ætla að segja það að það að vera geðlæknir er erfitt og þungt starf. Og við lærum að takast á við það. Veistu hvað er erfiðast í mínu starfi? Ég held þú gætir ekki giskað á það. Og það er verulega erfitt. Það eru samskipti við stofnanir kerfisins,“ segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í sláandi viðtali við Björn Þorláksson sem var birt á Samstöðinni í gærkvöldi.
Ólafur geðlæknir segir kerfið stöðugt versna: „Þetta er ómanneskjulegt“