„Mamma og pabbi 2027,“ skrifaði parið í færslu með myndaröð á samfélagsmiðlum sínum í hádeginu. Á myndunum mátti sjá parið brosandi með sónarmynd af ófæddu barninu.
Ólafur Jóhann hefur starfað sem útvarpsmaður á FM957, er ein stærsta TikTok-stjarna landsins og horfa tugþúsundir manna í hverri viku á myndbönd hans á samfélagsmiðlum.
Sigurlaug Birna er líka áhrifavaldur og hafa þau verið dugleg að sýna frá utanlandsferðum sínum síðustu ár.
Ólafur Jóhann var gestur Odds Ævars í Einkalífinu á Vísi í fyrra og opnaði sig þar um hjartagalla sem hann fæddis með og hjartaaðgerð sem hann fór í snemma árs 2025.