Ökumaður var handtekinn í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld í nótt eftir að hann var stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit og mikið af eiturlyfjum og peningum fannst í bifreið hans. Lögreglumenn tók fljótlega eftir að för mannsins var stöðvuð að hann stundaði sölu fíkniefna.
Flest mál í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þennan morguninn snúa að akstri og umferð ásamt almennu eftirliti og aðstoð við borgarana. Lögreglumenn liðsinntu til dæmis tveimur mönnum sem sváfu ölvunarsvefni í miðborginni við að komast í húsaskjól. Þrír gistu fangageymslur í morgun.