Tveir vopnaðir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur í nótt. Einn var með hamar og annar með exi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Sá sem tilkynnti um mennina til lögreglu sagði þá vera ógnandi og árásargjarna. Voru mennirnir handteknir og færðir í lögreglustöðina á Hverfisgötu. Lagt var hald á vopn þeirra. Í dagbók lögreglu greinir einnig frá því að tilkynnt var um þjófnað á hörðum diski á hóteli í miðborginni. Þrír eru grunaðir um verknaðinn.
Óhugnaður í miðborginni: Vopnaðir hamri og exi