Óskað var eftir aðstoð lögreglu á bráðamóttöku í gærkvöld eða nótt vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Viðkomandi var færður heim til sín en þegar þangað var komið bjó hann sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk og sveifla í átt að lögreglumönnunum. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar er hann vistaður í fangaklefa þar til víman rennur af honum og hann verður viðræðuhæfur.
Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir við fréttastofu að það sé ekki algengt að fólk sé til vandræða. Starfsfólk eigi góð og kurteisleg samskipti við langflesta sem leiti á bráðamóttökuna.
„Sem betur fer eru nú flestir mjög friðsamir sem koma til okkar á bráðamóttökuna en því miður kemur fyrir að fólk undir áhrifum áfengis hagar sér ekki eins og best verður á kosið.“ Á spítalanum starfi öflugt teymi öryggisvarða og hann segir enga óviðeigandi eða ógnandi hegðun liðna. Þegar atvik sem þessi koma upp sé liðsinnis lögreglu leitað.
Hraðaakstur og tveir gistu í fangaklefa
Samkvæmt dagbók lögreglunnar var einnig óskað eftir aðstoð í verslunarmiðstöð vegna barna sem neituðu að yfirgefa verslunarmiðstöðina. Nokkrir voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að hafa ekið bílum á 91 km/klst hraða í götu þar sem leyfilegur hámarkshraði er 40 km/klst.
Alls var bókað 91 mál í kerfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 síðdegis í gær og til klukkan fimm í morgun. Tveir gistu fangaklefa.
Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við Hjalta Má Björnsson.