Nútíminn hefur hafið reglulegt samstarf við Aðalheiði Jensen þar sem hún birtir myndbönd um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt. Nú er komið að öðru myndbandinu í röðinni.
Spurningin sem margir kannast við
Í nýja myndbandinu beinir Aðalheiður sjónum að fyrirbærinu ghosting, þegar annar aðili hættir skyndilega að svara án skýringa. Hún veltir upp spurningunni hvort stefnumótaöpp leiði í raun til raunverulegra kynna eða hvort samskiptin festist oftar en ekki í endalausu innantómu spjalli sem deyr svo út.
Margir sem hafa notað slík öpp kannast eflaust við fyrirbærið en Aðalheiður spyr hvort tæknin sé að færa fólk nær hvort öðru eða ýta undir yfirborðsleg samskipti.
Starfar við heilsu og lífsgæði
Aðalheiður er eigandi Tilveran Barre og yoga stúdíó á Garðatorgi 3. Hún hefur lagt áherslu á að styðja fólk í að bæta lífsgæði sín með hreyfingu, heilsu- og lífsráðgjöf.
Fleiri myndbönd frá Aðalheiði verða birt reglulega á Nútímanum þar sem hún heldur áfram að taka fyrir málefni sem tengjast daglegu lífi og samskiptum fólks.
View this post on Instagram