Tvenn ný leigubílafyrirtæki í Finnlandi þjónusta eingöngu konur og börn undir fimmtán ára aldri. Aðeins viðskiptavinir sem skráðir eru sem konur í opinberum skrám geta pantað ferðir.
Fyrirtækin heita Club WOWO og Naistaxi og voru bæði stofnuð 2025. Markmiðið með þjónustunni er að auka öryggistilfinningu kvenna í leigubílum, bæði farþega og bílstjóra.
Leigubílstjóri segist oft hafa fundið fyrir ótta
Viðbrögðin við nýjustu þjónustunni hafa að mestu verið jákvæð. Sumir hafa þó velt því fyrir sér hvort hún feli í sér mismunun gagnvart körlum.
Tara Oinonen, leigubílstjóri hjá Club WOWO, er ósammála því. „Það væri frekar undarlegt ef karlmaður myndi sérstaklega biðja um kvenkyns leigubílstjóra eftir skemmtun,“ bendir hún á í samtali við finnska ríkisútvarpið YLE.
Hún segist oft hafa fundið fyrir miklum ótta þegar hún hefur ekið karlmönnum og einnig lent í óþægilegum aðstæðum.
„Einn farþegi greip um höfuðið á mér og kyssti mig á varirnar, en annar snerti mig með óviðeigandi hætti aftan úr bílnum,“ segir Oinonen. Nokkur þessara mála hafa farið fyrir dómstóla.
Jafnréttisumboðsmaður Finnlands segir þjónustuna geta komið að gagni þar sem sumar konur upplifa óöryggi í leigubílum og hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í slíkum ferðum.
Þá segir umboðsmaður gegn mismunun að kynbundið ofbeldi sé enn samfélagslegt vandamál og því sé mikilvægt að grípa til aðgerða sem auki öryggi kvenna.
Skorti konur í starfinu
Frá því í mars hefur Bolt í Finnlandi einnig boðið upp á leigubílstjóraþjónustuna „Konur fyrir konur“ fyrir kvenkyns farþega á höfuðborgarsvæðinu í Helsinki.
„Margir viðskiptavinir á höfuðborgarsvæðinu höfðu samband við okkur og báðu um þessa þjónustu. Þeir sögðust finna fyrir meira öryggi með kvenkyns leigubílstjóra,“ segir Mikael Uusivori, framkvæmdastjóri Bolt í Finnlandi.
Uusivuori segir að fyrirtækið eigi nú í erfiðleikum með að ráða nægilega marga kvenkyns ökumenn til að mæta eftirspurn, þar sem meira en 95% bílstjóra fyrirtækisins eru karlar.
Hann telur að öryggisáhyggjur fæli margar konur frá því að starfa sem leigubílstjórar en fjölmargar hafi sagt fyrirtækinu að þær upplifi óöryggi á næturvöktum.
Karlar geta ekki pantað leigubíl hjá fyrirtækinu. Ef kona pantar fyrir karl hefur leigubílstjórinn rétt á því að neita að aka honum þegar hún kemur á staðinn.
Við bókun í gegnum Bolt þurfa farþegar að staðfesta kyn sitt með sjálfsmynd og mynd af vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum.