Meirihluti landsmanna ætlar að segja Já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu fyrir DV sem fór fram 22. - 29. júlí. Þegar horft er einvörðungu til þeirra sem taka afstöðu þá ætla 53 prósent að segja Já en 47 prósent að segja Nei.
Ný könnun: Meirihluti ætlar enn að segja Já