„Nú er þessi sleggja að koma fram“ - Vísir

„Nú er þessi sleggja að koma fram“ - Vísir

„Nú er þessi sleggja að koma fram“ - Vísir

Á Sprengisandi í morgun ræddi Páll Magnússon meðal annars við Kristrúnu Frostadóttur um þá gagnrýni sem fram hefur komið að krónutöluhækkanir ríkisins fylgi rúmlega 5 prósent verðbólgu en ekki verðbólgumarkmiðum sem eru 2,5 prósent. 

Sagði Kristrún þetta vera eitt af því sem rætt hafi verið í sumar í þríhliða viðræðum við aðila vinnumarkaðarins sem væri uppbyggilegra en oft virtist út á við.

„Það var ákveðið af þeim aðilum sem sátu við borðið að bíða með það fram á haust, ég ætla ekki að segjast taka slíku tilboði, heldur sammælast um það þegar við erum að tala um að sammælast um aðgerðir. Við erum á þeim stað að gagnvart krónutöluhækkunum erum við í ákveðnum viðræðum,“ sagði Kristrún í morgun.

„Við viljum taka sveitarfélögin að borðinu, við viljum taka atvinnurekendur að borðinu að því marki að þau geti gefið út almenn tilmæli. Við viljum líka fá einhverja vissu fyrir því að vera með stöðugleika á vinnumarkaði í haust.“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í viðtali í Bítinu í vikunni að hann hafi ekki átt í neinu virku samtali við forsætisráðherra. Starfsgreinasambandið er stærsta landssamband innan ASÍ.

„Nú ætla ég ekki að kíta við hann opinberlega. Forsætisráðuneytið er búið að opna á sína dagbók. Við erum búin að eiga yfir tuttugu fundi, bæði í stýrihópum og fundum sem ég hef setið. Ég hef líka setið fundi með forseta ASÍ sem hefur umboðið í þessum viðræðum,“ sagði Kristrún.

„Ég hef aldrei hafnað fundarbeiðni með verkalýðsforingja, það liggur alveg fyrir. Ég hitti hann ásamt fleirum aðilum í undirfélögunum tvisvar í sumar en flesta fundi hef ég átt með forseta ASÍ og framkvæmdastjóra SA og það hefur verið virkt samtal.“

Setur kröfu á meirihlutann

Kristrún segist bjartsýn á að ríkissjóður verði rekinn hallalaus en á síðustu fjárlögum var gert ráð fyrir 15 milljarða halla sem tvöfaldaðist í meðförum þingsins.

„Ég hef trú á því að við höfum allar forsendur til þess. Verður það auðvelt? Alls ekki og nákvæmlega útaf því að það eru veikleikar í kerfinu og sumir af þeim voru augljósari en aðrir til að byrja með,“ sagði Kristrún og bætti við að ríkisstjórnin teldi sig hafa náð yfir veikleikana.

Þá sagðist hún gera þá kröfu um að meirihlutinn virði þetta prinsipp um ábyrg ríkisfjármál.

„Það er mikið á fjárlaganefndina lagt en hún getur líka átt við aðra hluti og hún þarf ekki bara að eiga við útgjaldahliðina heldur getur líka átt við tekjuhliðina og fundið sparnað á móti öðrum tillögum. Nú þurfa allir að leggjast á eitt en ef ríkisstjórnin setur ekki þetta fordæmi og tekur erfiðu ákvarðanirnar þá mun enginn gera það.“

„Það hefur verið sjúkleiki í kerfinu“

Minnihlutinn hafi rætt um útgjaldaflaum en Kristrún segir hlutfall útgjaldaráðstafana það minnsta á undanförnum árum.

„Það hefur verið sjúkleiki í kerfinu þegar kemur að því að keyra velferðina áfram á skuldum og það getur verið eðlilegt þegar þú ert í gígantísku áfalli, eins og við vorum í faraldrinum, en í svona mörg ár á eftir skapar þú gríðarleg vandamál. Þú ert kominn með vaxtakostnað upp á 160 milljarða á ári sem var um 50 milljarðar við upphaf þarsíðustu ríkisstjórnar og þetta er tekið úr vasa heimilanna. Þannig að við erum að grípa í handbremsuna.“

Verðbólgan mælist nú 5,6 prósent en hún fór niður í 3,7 prósent á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd að hún kyndi undir verðbólgubálinu en því er Kristrún ekki sammála.

„Ég er ekki sátt með hvar verðbólgan er. Ég veit alveg hvernig hefur verið rætt um opinberar hækkanir, það voru hækkanir sem höfðu áhrif á vísitöluna í janúar um 0,3 prósent og það er í kringum það meðaltal sem við höfum séð í janúar vegna opinberra gjalda. Við erum hins vegar með greiningar á því að meirihlutinn af þessu 1,6 prósenti sem hefur bæst við verðbólguna á þessu ári eru olíuverðshækkanir, þetta eru flugfargjaldahækkanir vegna þess að það var að brjótast út stríð á þessum tíma.“

Segir taka tíma að mynda pólitíska stefnu

Kristrún segir jafnfram að undirliggjandi verðbólga hafa farið lækkandi.

„Við sögðumst ætla að skapa forsendur til að lækka vexti með því að hætta að reka ríkið á yfirdrætti. Það eru fjárlögin sem við erum að leggja fram núna. Ég hefði gjarnan viljað labba inn og snúa öllu á haus strax sem var illa gert,“ sagði Kristrún en bætti við að auðvitað væri margt gott í íslensku samfélagi og vel gert.

„Þetta tekur tíma, fjárlög eru seigfljótandi. Ég var að tala um veikleikana sem ég vissi ekki af fyrr en ég var kominn næstum ár inn í embættið. Það tekur tíma að mynda pólitíska stefnu og beygja og sveigja hlutina í rétta átt. Nú er þessi sleggja að koma fram og það eru ekkert allir sáttir við hana enda er erfitt að gera þetta. Það er enginn önnur leið fyrir okkur að beita ríkinu en að loka þessu gati.“

Stjórnvöld hafi misst af glugganum til að afnema verðtryggingu

Páll Magnússon ræddi einnig afnám verðtryggingar sem hann sagði hafa verið setta á fyrir um fimmtíu árum þegar verðbóla var um 50 prósent.

„Ég er mótfallin verðtryggingunni en ég skil af hverju hún kom til. Mér finnst verðtryggingin vond en með því er ég ekki að segja að það verði auðvelt að afnema hana eða að fólk verði sátt við það,“ sagði Kristrún.

Verðtrygging hafi skapað þær aðstæður að stýrivextir þurfa að vera hærri hér en ella. Þeir séu bitlausari í svona kerfi og það vindi upp á sig.

„Þetta er ekki gott ástand til að vera í, vandinn er sá að það er erfitt að afnema verðtryggingu að fullu og sérstaklega þegar þú ert í háum vöxtum. Það sem hefði þurft að gerast hérna er að eftir kórónuveirufaraldurinn, þar sem stjórnvöld og kannski einhverjir hagfræðingar þarna úti sköpuðu forsendur fyrir því að 0,75 prósent stýrivextir væru eðlilegt ástand í heilbrigðu hagkerfi.“

„Í þessu tilviki hefði átt að byrja á að afnema verðtrygginguna. Þá voru allir komnir í óverðtryggð lán, byrjaðir að skuldbreyta og það er auðveldast að gera það þannig. Við misstum gluggann að gera þetta með auðveldum hætti. Þá þegar verðbólgan fór af stað aftur, ef stýrivextir hefðu hækkað eins, hefði það snarhemlað kerfið.“

Von sé á frumvarpi fyrir jól sem hefji þessa vegferð.

„Það þarf að gera þetta í skrefum. Það er fólk þarna úti sem verður ósátt því það eru einhverjir búnir að selja afnám verðtryggingar sem það að allt í einu færðu verðtryggðu vextina þína á nafnvöxtum, þú ert bara með 5 prósent óverðtryggða vexti. Það verður augljóslega ekki þannig. Við verðum að gera þetta, þetta er að gegnsýra kerfið og þetta mun krefjast erfiðra ákvarðana.“

Sendir sneið á rekstraraðila baðlóna

Í umræðu um innviðaskatt á ferðaþjónustu, hækkunar virðisaukaskatts á baðlón og hækkun kílómetragjalds hefur það sjónarmið komið fram að hækkunin komi sér sérstaklega illa fyrir íbúa á landsbyggðinni.

Kristrún sagðist ekkert gefa fyrir slíka nálgun.

„Mér finnst alveg ótrúlegt að ívilnun á virðisaukaskatti sem baðlón hafa, þar er greitt 11 prósent skattur fyrir afþreytingu. Þegar þú ferð með barn í bíó eða sjálfur í bíó þá borgar þú 24 prósent virðisaukaskatt. Þetta er stærsti skattstofn ríkisins og það er ekkert eðlilegt að þessi starfsemi sé með ívilnun. Það er verið að afnema skattafslátt sem baðlónin hafa og þetta er ekki réttlætanlegt miðað við aðra afþeyingu sem er að greiða fullan virðisaukaskatt.“

Þá sagði Kristrún að innviðagjald á erlenda ferðamenn væri einmitt hugsað út frá landsbyggðinni.

„Það er verið að reyna að leita leiða til að dreifa álagi ferðamanna. Það hefur verið mikið talað um að mesta álagið sé á suðvesturhornið en minna sótt út á land. Við erum með þarna nokkrar náttúruperlur sem eru í eigu íslensku þjóðarinnar þar sem fólk greiðir ekki krónu fyrir að heimsækja staðinn,“ sagði Kristrún en bætti við að vissulega væru bílastæðagjöld á einhverjum þessara staða.

Kristrún sagði könnun hafa sýnt að vilji væri á meðal ferðamanna að greiða fyrir aðgengi að þessum stöðum og að ekki væri gert ráð fyrir að fólk með heimilisfesti á Íslandi greiddi þetta gjald. Þá boðaði hún útfærslur á hvernig gjaldið yrði innheimt.

„Það væri hægt að gera þetta með tæknilausn, þannig að fólk greiðir mismunandi upphæðir eftir tíma árs eða tíma dags og þetta opnar í einhverjum tilvikum á lausn sem einkaaðilar geta farið inn í og hjálpað okkur að auglýsa staði og dreifa álaginu.“

Kílómetragjaldið sé réttlætismál

Kristrún sagði jafnframt að kílómetragjaldið væri fyrst og fremst réttlætismál þó hún skildi mótstöðuna við það. Enginn vildi borga meira af bílnum sínum en þetta gjald væri búið að vera í vinnslu í áraraðir og síðasta ríkisstjórn hafi gert ráð fyrir meiri gjaldtöku á þessu ári en núverandi stjórn. Hún sagðist ekki vilja sleppa nýframkvæmdum og viðhaldi og nauðsynlegt væri að standa undir kerfinu hér á landi.

Þá hafi olíugjaldið sem áður var lagt á eldsneyti hækkað um öll áramót í gegnum tíðina og samfélagið væri á vondum stað ef við værum orðin það kreddukennd í sköttum og gjöldum að það megi ekki viðhalda hlutum út frá verðlagi.

„Ég skil vel að fólk pirri sig á því að vera að fá tölvupósta og minnt á hvað þurfi að borga, áður borgaði það á pumpunni.“

Málið væri hins vegar réttlætismál.

„Vegna þess að við vorum farin að byggja upp kerfi þar sem fólk, sem gat keypt sér nýjan, dýran rafmagnsbíl, borgaði nær ekkert fyrir að nota vegakerfið á meðan þeir sem voru á ódýrum, gömlum díselbíl eða aðilar sem gátu ekki verið á rafmagnsbíl úti á landi þeir voru að borga brúsann. Ef eitthvað var er þetta leiðrétting fyrir landsbyggðina þar sem fólk er í mörgum tilfellum síðuar á rafbíl.“

Ríkisstjórnin hafi skoðað að draga umsóknina til baka

Í viðtalinu fagnaði Kristrún samstöðu með EES-samningnum sem fram hafi komið í umræðum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Páll spurði hvort það hefði ekki verið rökrétt frumvarp, í ljósi þess að þjóðin hafnaði frekari viðræðum, að draga umsóknina til baka.

„Það fer eftir því hvernig þú horfir á það. Þjóðin var spurð hvort hún vildi halda aðildarviðræðum áfram, hvort hún vildi fara úr því að vera í núverandi ástandi gagnvart ESB og Evrópu og ganga skrefinu lengra og hefja aðildarviðræður. Þjóðin sagði nei við frekari aðildarviðræðum og þar við situr.“

Kristrún sagði að ríkisstjórnin hefði rætt hvort draga ætti umsóknina alfarið til baka.

„Auðvitað var það rætt, sú ákvörðun hefur verið tekin að við ætlum ekki að breyta þeim samskiptum eða því sambandi hvort sem þú kallar það samninga eða fyrirliggjandi samskipti eða hvernig þú orðar svona. Það var ekki tilgangurinn að hörfa til baka, tilgangurinn var að spyrja förum við lengra og þar við situr.“

#fram #koma #sleggja #vísir #þessi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262934008d/-nu-er-thessi-sleggja-ad-koma-fram-

📰 Aðrar fréttir

Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur
📅 14.09.2026 👁️ 0
Vilja að það verði erfiðara að verða Íslendingur
Þingflokkur Miðflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að herða skilyrði sem innflytjendur þurfa ...
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
📅 14.09.2026 👁️ 0
Jón Birgir Jónsson ráðinn forstjóri Kviku banka
Stjórn Kviku banka hefur ráðið Jón Birgi Jónsson sem forstjóra bankans. Jón Birgir mun hefja störf þann 1. desember næstkomandi og tekur þá við af Árm...
Nýtur miklu meira trausts en mamma sín
📅 14.09.2026 👁️ 0
Nýtur miklu meira trausts en mamma sín
Ingiríður Alexandra krónprinsessa Noregs nýtur mikils trausts meðal landa sinna og raunar er traustið hennar í garð miklu meira en þjóðin hefur til mó...
Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Stjórnin lík­lega fallin en staðan afar þröng - Vísir
Fádæma spenna var þegar talning atkvæða í sænsku þingkosningunum hófst í gær. Fljótlega varð ljóst að munurinn á milli hægri blokkar ríkisstjórnarinna...
Rigning norðarlands en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Rigning norðarlands en að mestu þurrt annars staðar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að það verði dálítil rigning norðanlands og þokusúld en að það ætti að haldast að mestu þurrt í öðru...
British tourists continue to dominate Canary Islands holiday market
📅 14.09.2026 👁️ 0
British tourists continue to dominate Canary Islands holiday market
British tourists continue to dominate the Canary Islands’ tourism industry, with the latest official figures showing that 576,338 visitors from the Br...
Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í út­löndum - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Miami minningar Hlaðvarpsstýran og áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaug...
Lýsa yfir miklum vonbrigðum með Vegagerðina - „Eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir“
📅 14.09.2026 👁️ 0
Lýsa yfir miklum vonbrigðum með Vegagerðina - „Eðlileg krafa að samskiptin gangi í báðar áttir“
Byggðaráð Langanesbyggðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með framgöngu Vegagerðarinnar. Segir byggðaráð að sveitarfélagið hafi ekki verið upplýst um að ...
Hákarl réðst á brimbrettakappa
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hákarl réðst á brimbrettakappa
Hákarl réðst á brimbrettakappa á sextugsaldri í sjónum nærri Glenfield-strönd í vestur Ástralíu í gær. Maðurinn var fluttur í skyndi á spítala eftir á...
Dagamunur í veðrinu
📅 14.09.2026 👁️ 1
Dagamunur í veðrinu
Landsmenn geta búist við nokkrum umhleypingum í veðri næstu daga. Í dag verður þurrt að kalla víðast nema norðanlands, á Austurlandi og suðaustanlands...
Tollum hótað vegna hval­veiða sem verða bannaðar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Tollum hótað vegna hval­veiða sem verða bannaðar - Vísir
Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er boðað að frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar verði lagt fram í febrúar. Byggt verður á skýrslu um lagaum...
Driver who smashed into TF-1 bus stop was more than three times over drink-drive limit
📅 14.09.2026 👁️ 0
Driver who smashed into TF-1 bus stop was more than three times over drink-drive limit
A reckless driver whose car left the TF-1 motorway and smashed into a bus stop in the south of Tenerife is being investigated after a breathalyser tes...
John­son rétt slapp við á­rás Rússa - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
John­son rétt slapp við á­rás Rússa - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að dróninn hafi hæft vélarrými lestarinnar en samkvæmt tilkynningu úkraínskra stjórnvalda ...
Út­kall vegna hópslags­mála í bíla­kjallara - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Út­kall vegna hópslags­mála í bíla­kjallara - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en þar segir að lögreglan hafi farið á staðinn eftir að tilkynning um hópslagsmálin barst. Um var að ræða útkal...
Are two-seat ‘mobility scooters’ rented to tourists actually legal in the Canary Islands?
📅 14.09.2026 👁️ 0
Are two-seat ‘mobility scooters’ rented to tourists actually legal in the Canary Islands?
Two-seat electric “mobility scooters” have become a familiar sight in tourist resorts across the Canary Islands, allowing couples to travel together a...
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi
📅 14.09.2026 👁️ 0
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi
Umhverfismál gætu orðið bitbein á þingi Um­hverf­is­ráð­herra mun mæla fyr­ir ETS2-kerfi sem los­un­ar­heim­ild­ar­kerfi fyr­ir bygg­ing­ar, vega­sam­...
Búið að telja 94% atkvæða
📅 14.09.2026 👁️ 1
Búið að telja 94% atkvæða
Rauða blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða í þingk...
Búið að telja 94% atkvæða en of snemmt að skera úr um hver vinnur
📅 14.09.2026 👁️ 0
Búið að telja 94% atkvæða en of snemmt að skera úr um hver vinnur
Rauðgræna blokkin í Svíþjóð leiðir með þremur þingmönnum, 176 gegn 173 þingmönnum blágulu borgaralegu blokkarinnar. Alls er búið að telja 94% atkvæða ...
Rússnesk drónaárás nærri lest með evrópskum diplómötum
📅 14.09.2026 👁️ 0
Rússnesk drónaárás nærri lest með evrópskum diplómötum
Stjórnvöld í Póllandi og Úkraínu fordæma árás sem Rússar gerðu á lest nærri landamærunum milli Póllands og Úkraínu í gærmorgun. Lestin var Úkraínumegi...
Tilkynnt um hópslagsmál í bílakjallara
📅 14.09.2026 👁️ 2
Tilkynnt um hópslagsmál í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hópslagsmál í bílakjallara í gær eða nótt samkvæmt dagbók lögreglunnar.Flestir voru farnir þegar lö...
Peers to debate donations law changes after Reform's £72m windfall
📅 14.09.2026 👁️ 1
Peers to debate donations law changes after Reform's £72m windfall
The government is seeking to change the law on donations to UK political parties from British expats.
Select committee calls for bill to address AI threat to human rights
📅 14.09.2026 👁️ 0
Select committee calls for bill to address AI threat to human rights
A cross-party group of MPs and peers identifies human rights risks that existing laws appear not to cover.
MPs and Lords call for new law to address AI threat to human rights
📅 14.09.2026 👁️ 0
MPs and Lords call for new law to address AI threat to human rights
Existing laws are not equipped to address the risks to human rights being posed by artificial intelligence, UK politicians say.
Trump lagði til sameiningu með Norður-Írlandi
📅 14.09.2026 👁️ 0
Trump lagði til sameiningu með Norður-Írlandi
Donald Trump forseti Bandaríkjanna lauk tveggja daga heimsókn til Írlands í dag. Heimsókninni var mótmælt víða.Trump fékk móttökur eins og þjóðhöfðing...
Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol
📅 14.09.2026 👁️ 0
Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol
Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol-ströndinni á Spáni í gær, þar af er einn með alvarlega brunaáverka.Eldarnir kviknuðu í fjalllendinu v...
Vill svipta kvikmyndaleikstjóra ríkisborgararétti sínum
📅 14.09.2026 👁️ 0
Vill svipta kvikmyndaleikstjóra ríkisborgararétti sínum
Menningarmálaráðherra Ísrael kallar ísraelska heimildamyndaleikstjóra landráðamenn og segir að það eigi að svipta þá ríkisborgararétti.Leikstjórarnir ...
Why a Russian strike on train near Ukraine-Poland border could mark an escalation
📅 14.09.2026 👁️ 0
Why a Russian strike on train near Ukraine-Poland border could mark an escalation
No casualties were reported after a Russian drone struck a train shortly after Boris Johnson and top European officials left the area.
UK Weather: Turning cooler, wetter and windier this week
📅 14.09.2026 👁️ 0
UK Weather: Turning cooler, wetter and windier this week
A stronger jet stream will bring a distinctly autumnal look to our weather this week, but is there a September heatwave on the horizon later this mont...
Hníf­jafnt og mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Hníf­jafnt og mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
Sósíaldemókratar undir forystu Magdalenu Andresson er stærsti flokkurinn og hlaut 28 prósent atkvæða nú þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin. Þar...
Mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Mögu­leiki á að úr­slit ráðist ekki fyrr en í næstu viku - Vísir
Sósíaldemókratar undir forystu Magdalenu Andresson er stærsti flokkurinn og hlaut 28 prósent atkvæða nú þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin. Þar...
Buckingham Palace works uncover trove of everyday items dating back to 1800s
📅 13.09.2026 👁️ 0
Buckingham Palace works uncover trove of everyday items dating back to 1800s
A collection of historic, forgotten items have been found during the restoration of the London royal residence.
The Pitt is up for 25 Emmys - but the show's biggest fans are real-life doctors
📅 13.09.2026 👁️ 1
The Pitt is up for 25 Emmys - but the show's biggest fans are real-life doctors
Those in the medical profession say the HBO Max show about a US hospital emergency room is the most realistic medical drama yet.
Why a fresh wave of North Korean soldiers may fight in Russia's war in Ukraine
📅 13.09.2026 👁️ 0
Why a fresh wave of North Korean soldiers may fight in Russia's war in Ukraine
North Korea will continue to send its soldiers to fight in Russia's war, but only for as long as it is profitable to do so, writes the BBC's Quentin S...
I had 11 years of chemotherapy for a cancer I didn't have
📅 13.09.2026 👁️ 1
I had 11 years of chemotherapy for a cancer I didn't have
Becky Jones is among more than 40 people taking legal action against a hospital trust.
Gloomy forecast for tenants as rent rises set to speed up
📅 13.09.2026 👁️ 1
Gloomy forecast for tenants as rent rises set to speed up
The cost of renting is expected to rise by 4% or 5% a year by December, according to property website Zoopla.
Rent rises set to speed up in gloomy forecast for tenants
📅 13.09.2026 👁️ 0
Rent rises set to speed up in gloomy forecast for tenants
The cost of renting is expected to rise by 4% or 5% a year by December, says property website Zoopla.
Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku banka
📅 13.09.2026 👁️ 1
Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku banka
Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Kviku banka hf. Hann tekur til starfa 1. desember og tekur þá við af Ármanni Þorvaldssyni sem tilk...
„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
„Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ - Vísir
Bragi segir smekkleysið hafa sigrað og að metnaðarleysi sé komið til að vera. „En ég á bara svo erfitt með að trúa því að við ætlum að sætta okkur við...
Óvænt fertugsafmæli kom upp sár svik - „Hvernig gat hann gert mér þetta?“
📅 13.09.2026 👁️ 1
Óvænt fertugsafmæli kom upp sár svik - „Hvernig gat hann gert mér þetta?“
Kona leitar ráða til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun, Dear Deidre. Hún ákvað að koma kærasta sínum á óvart og halda fyrir hann fertugsafmæli. Hún...
US Open 2026 results: Alexander Zverev beats Ben Shelton for second Grand Slam title
📅 13.09.2026 👁️ 0
US Open 2026 results: Alexander Zverev beats Ben Shelton for second Grand Slam title
Alexander Zverev lands his second Grand Slam title after ending Ben Shelton's hopes of becoming a rare home US Open men's champion.
Þungt högg fyrir ferða­þjónustu á Austur­landi - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Þungt högg fyrir ferða­þjónustu á Austur­landi - Vísir
Á síðasta ári komu tuttugu og fimm skemmtiferðaskip til Borgarfjarðar eystri en á næsta ári stefnir í að þau verði einungis níu eða tíu að sögn Rúnars...
Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af - Vísir
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði á hendur manninum sem var kveðinn upp um miðjan júlí, en birtist á vef dómstólanna fyrir skömmu. Atvikið sem...
Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“
📅 13.09.2026 👁️ 1
Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“
Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður, textasmiður og íslenskufræðingur furðar sig á límmiðum sem grunnskólabörn hafa fengið afhenta frá lögreglunni...
Gríðarlega mjótt á munum í kosningunum í Svíþjóð
📅 13.09.2026 👁️ 2
Gríðarlega mjótt á munum í kosningunum í Svíþjóð
84% atkvæða í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í dag hafa verið talin og staðan gæti varla verið jafnari. Rauða blokkin leiðir enn með einum þingm...
Deep-fried food banned under new school dinner rules in England
📅 13.09.2026 👁️ 1
Deep-fried food banned under new school dinner rules in England
The government describes its new school food standards as "once-in-a-generation changes".
'Culture shift' needed in how UK does business, Andy Burnham urges
📅 13.09.2026 👁️ 1
'Culture shift' needed in how UK does business, Andy Burnham urges
Burnham has said those who take risks should be backed by government, but his government has been criticised for increasing business costs.
Þriðjungur borgar­búa vill skipta um ferða­máta - Vísir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Þriðjungur borgar­búa vill skipta um ferða­máta - Vísir
Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarverkefnisins Tilraunaborgir á vegum Reykjavíkurborgar sem nýlega voru kynntar í umhverfis- og skipulagsnefnd....
Síðasta sjoppan á Dalvík skellir í lás
📅 13.09.2026 👁️ 2
Síðasta sjoppan á Dalvík skellir í lás
Söluskáli Olís á Dalvík lokar 1. nóvember. Söluskálinn er síðasta sjoppan í bænum og eru Dalvíkingar í öngum sínum yfir lokuninni. Söluskálinn er síða...
Landsliðshetja að verða faðir
📅 13.09.2026 👁️ 1
Landsliðshetja að verða faðir
Landsliðshetja að verða faðir Viktor Gísli og Jenný á góðri stundu Mynd: Jenný Fjóla Ólafsdóttir/Instagram Handknattleiksmaðurinn Viktor Gísli Hallgrí...
Sterkefnuð kona grunuð um að myrða eiginmann sinn með fánastöng
📅 13.09.2026 👁️ 1
Sterkefnuð kona grunuð um að myrða eiginmann sinn með fánastöng
Bandarísk kona á sjötugsaldri hefur verið ákærð fyrir morð á eiginmanni sínum. Málið er sérstakt að því leyti að konan er sökuð um að hafa notað fánas...