Nokkrum í sendinefnd Írana sem voru á leið á allsherjarþingið Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum var neitað um vegabréfsáritun og geta því ekki sótt þingið. IRNA, íranskur ríkisfjölmiðill, greindi frá þessu í gær.
Masoud Pezeshkian, forseti Írans, verður æðsti embættismaðurinn til að koma til Bandaríkjanna frá því að stríðið braust út í Mið-Austurlöndum í febrúar. Meðal þeirra sem fengu ekki vegabréfsáritun var fólk í samskiptateymi forsetans.
Þeim sem fá að ferðast til Bandaríkjanna eru þó ýmsar takmarkanir settar þegar þangað er komið. Sendinefnd Írans er til að mynda ekki leyfilegt að kaupa lúxusvarning eða aðrar vörur, samkvæmt utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna.