Engan virðist hafa sakað þegar New Glenn eldflaug bandaríska geimferðafyrirtækisins Blue Origin sprakk í loft upp á skotpalli á Canaveralhöfða í Flórída.
Í stuttri tilkynningu fyrirtækisins á X segir að frávik hafi uppgötvast við prófanir á búnaði flaugarinnar á miðvikudag. Myndskeið sýnir mikinn reyk streyma undan flauginni áður en hún leystist upp í risastóran eldhnött.
Mike Haridopolos, þingmaður fyrir Flórída, kveðst hafa rætt atvikið við Jared Isaacman, forstjóra NASA.
Hann kvaðst jafnframt afar þakklátur fyrir að engan sakaði og hrósaði björgunarsveitum, verkfræðingum og starfsliði stjórnstöðvar fyrir skjót og fumlaus viðbrögð. Heldur hefur gengið brösulega undanfarið hjá Blue Origin, sem er í eigu auðkýfingsins Jeffs Bezos.
Rannsókn stendur meðal annars yfir eftir að New Glenn-eldflaug bilaði þannig að ekki tókst að koma gervihnetti á réttan sporbaug um jörðu. New Glenn þykir þó marka tímamót í geimferðasögunni og NASA notaði slíka flaug til að senda tvö könnunarför til Mars í nóvember síðastliðnum. Hér fyrir neðan má sjá myndskeið af sprengingunni.