Rætt verður við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra í fréttatímanum en ótímabundið allsherjarverkfall flugvirkja á að hefjast á miðnætti.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra kynnti nýjar losunartölur Íslands og stöðu loftslagsmála á blaðamannafundi í morgun. Við heyrum í ráðherra í fréttatímanum en íslensk stjórnvöld gætu þurft að kaupa losunarheimildir fyrir tugi milljarða á næstu árum til þess að standast skuldbindingar í loftslagsmálum.
Forsætis- og utanríkisráðherrar Íslands sækja Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York sem hefst í dag. Þar munu fulltrúar Grænlendinga, Dana og Bandaríkjamanna skrifa undir samkomulag um varnaruppbyggingu á Grænlandi.
Fimmtungur íslenskra ungmenna drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar samkvæmt nýrri rannsókn en byrja ekki að drekka slíka drykki jafn snemma og jafnaldrar þeirra á Norðurlöndunum.
Í íþróttunum verður staða Íra rædd en öll spjót standa að þeim og þjálfaranum Heimi Hallgrímssyni vegna komandi leikja Írlands og Ísraels í Þjóðadeildinni. Íslenska landsliðið kom saman til æfinga í dag en framundan eru þrír leikir hjá strákunum okkar.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar í beinni útsendingu á slaginu tólf.