Illa gekk að ná sambandi við Neyðarlínuna þegar karlmaður slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Fljótsdal á þriðjudag. Heimamenn segja farsímasamband hafa versnað í Fljótsdal eftir að fjarskiptakerfum var lokað í fyrra. Áhyggjur eru af versnandi símasambandi eftir lokun 2G og 3G fjarskiptakerfa, sérstaklega sambandi við neyðarnúmer.
„Við vorum sem sagt að vana fola og búið að svæfa hann, og geldingin afstaðin,“ lýsir Jóhann Frímann Þórhallsson, bóndi í Brekkugerði í Fljótsdal, þar sem hann situr á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
„Hann var að standa upp og var þá svona reikull á fótunum, var að detta og ég ætlaði bara að styðja við hann. Það átti ég náttúrulega alls ekki að gera og átti að vita að ég myndi ekki ráða við það. Hann datt ofan á mig með þeim afleiðingum að ég fótbrotnaði.“
Jóhann slasaðist illa. Hann tvíbrotnaði á vinstri fæti og marðist á ökkla og mjöðm. Hann segir þó sjálfur að hann hafi sloppið ágætlega; hefði komið þyngra högg á bak eða höfuð þegar hann lenti undir folanum væri aðra sögu að segja.
Náðu ekki í Neyðarlínuna og Neyðarlínan ekki í þau
Sem betur fer var Jóhann ekki einn þegar slysið varð, heldur voru dóttir hans og mágkona með honum. Þegar ljóst var að hann væri alvarlega slasaður var strax ákveðið að kalla á hjálp. Dóttir hans reyndi þá að hringja í Neyðarlínuna – en náði ekki í gegn. Hún reyndi strax aftur en það var sama sagan.
„Hún var ekki í sambandi, fékk ekki samband,“ segir Jóhann.
Sem betur fer var mágkona Jóhanns einnig viðstödd og hún náði í gegn.
Dóttir Jóhanns hefur verið í sambandi við Neyðarlínuna og er leitað skýringa á því að símtal hennar barst ekki til neyðarvarða.
Sjúkrabíll flutti Jóhann til Egilsstaða þaðan sem var flogið með hann á Sjúkrahúsið á Akureyri.
„Svo á leiðinni þá sagði sjúkraflutningamaðurinn að þeir hefðu ekki náð sambandi við mágkonu mína á meðan þeir voru að flytja, það hefði ekki verið samband,“ segir Jóhann.
Segir falskt öryggi óásættanlegt
Brekkugerði er norðvestan Lagarfljóts í Fljótsdalshéraði og hinum megin við fljótið er eitt vinsælasta tjaldsvæði landsins, Atlavík. Á þessum slóðum er iðulega á sumrin talsverð umferð heima- og ferðamanna sem njóta sín þar í ýmiss konar útivist.
Austurfrétt greindi frá málinu síðdegis og hafði eftir oddvita í Fljótsdal að þar hefðu íbúar kvartað yfir versnandi símasambandi eftir að slökkt var á 2G og 3G sendum.
„Að afnema 2G og 3G án þess að vera búin að vinna almennilega í öryggismálunum og fjarskiptunum er náttúrulega alveg óásættanlegt fyrir okkur í dreifbýlinu. Að öryggið skuli vera svona falskt,“ segir Jóhann.
Fleiri hafa ekki náð í 112 þegar á reynir
Ísland er fyrst Evrópulanda til að slökkva alveg á 2G- og 3G-sendum og annað landið í heiminum öllum, á eftir Ástralíu.
Fréttastofa hefur fjallað ítarlega um vandamál með neyðarhringingar, uppfærslu á búnaði í öryggiskerfum og lyftum og fleira.
Eftir að Ísland slökkti alveg á fjarskiptakerfunum hefur eCall, kerfi sem hringir sjálfvirk neyðarsímtöl úr bílum, nánast þurrkast út. Fréttastofa greindi frá því í sumar að sjálfvirku neyðarsímtölin hafi verið 175 í maí en aðeins fimm í júní.
Fyrr í sumar var sagt frá manni á Skagaströnd sem reyndi ítrekað að ná sambandi við Neyðarlínuna án árangurs og í framhaldi lýstu fleiri því sama.
Í júlí bættu Fjarskiptastofa og Neyðarlínan við nýju varanúmeri fyrir 112 vegna vandans.
Vandinn er talinn stafa af því að sumir símar fari í neyðarham þegar hringt er í 112 og þá leiti þeir á 2G- og 3G-kerfin, sem nú eru orðin óvirk.
Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og íslensk farsímafyrirtæki hafa gefið út að þau vinni saman við að greina orsakir vandans og leita lausna.