Ilham Aliyev, forseti Aserbaísjans, náðaði í dag franska kaupsýslumanninn Martin Ryan. Ryan var dæmdur í tíu ára fangelsi í Aserbaísjan fyrir njósnir síðasta vor, en hefur verið í haldi frá 2023. Frakkar hafa lagt mikla áherslu á að fá hann lausan.
Náðunin er talin vera hluti af samkomulagi Frakka við Aserbaísjan, Úsbekistan og Tyrkland.
Á móti hafi Frakkar þrýst á um að rússnesk-úsbekski ólígarkinn Alisher Usmanov verði tekinn af refsilista ESB vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Auk Usmanovs var annar rússneskur auðmaður, Mikhail Fridman, tekinn af listanum að kröfu Lúxemborgar.
Þessir snúningar ollu talsverðri kergju innan ESB, en ef aðildarríkin hefðu ekki náð saman hefðu refsiaðgerðir sambandsins gegn um þrjú þúsund einstaklingum og fyrirtækjum runnið út í gærkvöldi.
Á móti var aðgerðapakkinn gegn Rússlandi framlengdur um þrjú ár, en fram að því var hann endurskoðaður á hálfs árs fresti.
Mörg aðildarríkja telja þó að þessi gjörningur setji hættulegt fordæmi og Úkraínumenn sögðu meðal annars í vikunni að herða ætti tökin á Rússum frekar en að slaka á klónni.
Stök aðildarríki, að minnsta kosti Lettland og Litháen, hafa brugðist við með því að leggja einhliða þvingunaraðgerðir á Usmanov og Fridman.
Ekkja Navalnýs: Peningar umfram prinsipp
Julía Navalnya, ekkja rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalný sem lést í fangelsi 2024, var ómyrk í máli og sagði að þarna sannaði ESB að í efstu lögum alþjóðastjórnmála væru peningar settir ofar en prinsipp.
Franska utanríkisráðuneytið fagnaði launs Ryans og sagði hana mikinn létti. Aserar hafi brugðist við af mannúð eftir langar viðræður.