Sigmundur Hreiðarsson, sláturhússtjóri Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík, segir að í ár verði slátrað ívið fleiri fjár heldur en í fyrra eða rúmlega 89 þúsund. Sláturtíðin fer þó rólega af stað. Sláturhúsið á Húsavík er eitt af fjórum stærstu sauðfjársláturhúsum landsins.
Samkvæmt heimildum Bændablaðsins er örlítil fækkun sláturfjár í ár hjá KS í Skagafirði, á meðan Fjallalamb á Kópaskeri bætir í. Sláturfélag Suðurlands á Selfossi er með svipaðan fjölda og í fyrra eða um 100 þúsund fjár.
Sigmundur sagði í samtali við fréttastofu að sláturtíðin færi ágætlega af stað þó að brösulega gengi að ná fé inn til slátrunar. Helstu orsakir þess væru veðrið og mývargurinn sem gerði mönnum erfitt fyrir. Hann segir þó að sláturtíðinni verði lokið fyrir 10. október og ef þörf krefur verði líka slátrað um helgar. Hann á þó ekki von á því.
125 nýir starfsmenn frá 13 löndum
Hjá Kjarnafæði Norðlenska hófu 125 starfsmenn störf um mánaðamótin, af þrettán þjóðernum. Að sögn Sigmundar setja starfsmennirnir skemmtilegan blæ á bæjarlífið á Húsavík á meðan sláturtíð stendur. Yfir 90% af starfsfólkinu hefur komið áður til starfa í vertíð hjá Kjarnafæði Norðlenska. Hann segir að lítið mál sé að koma þessu fólki fyrir, fyrirtækið búi vel á Húsavík og það sem upp á vanti sé leyst með leiguhúsnæði í sveitunum í kring. Kjarnafæði Norðlenska slátrar eingöngu sauðfé á Húsavík og hætti slátrun á Blönduósi í fyrra.