Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í helstu borgum Suður-Afríku á þriðjudag og kröfðust þess að allir ólöglegir innflytjendur yfirgæfu landið. Lögregla og öryggissveitir voru með mikinn viðbúnað eftir að samtök gegn ólöglegum innflytjendum höfðu gefið þeim sem dvelja ólöglega í landinu frest til að yfirgefa það.
„Þrátt fyrir umfang mótmælanna og alvarlegar hótanir um morð á innflytjendum hafa stórir alþjóðlegir fjölmiðlar ekki lýst þeim sem „öfgahægri“ eða „far right“ mótmælum í umfjöllun sinni“
Margir innflytjendur hafa þegar flúið af ótta við ofbeldi og yfirvöld segja tugþúsundir hafa verið fluttar úr landi undanfarna mánuði.
Hóta að elta þá uppi sem verði eftir
Skipuleggjendur mótmælanna hafa sagt að þeir sem yrðu áfram í landinu eftir frestinn gætu átt von á því að verða eltir uppi og drepnir.
Í myndböndum og viðtölum sem hafa farið víða á samfélagsmiðlum má heyra mótmælendur segja að þeir muni elta þá uppi og drepa þá sem yfirgefi ekki landið. Slík ummæli hafa vakið enn meiri ótta meðal margra innflytjenda og margir hafa ákveðið að snúa aftur til heimalanda sinna.
Eitt helsta slagorð mótmælanna var: „Secure your borders or face chaos.“
Thousands joined anti-immigration protests across South Africa after campaign groups set June 30 as an unofficial deadline for undocumented migrants to leave the country. Here’s what happened. pic.twitter.com/WPWe9v0gxB
— Al Jazeera English (@AJEnglish) June 30, 2026
Herinn settur í viðbragðsstöðu
Mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram að sögn lögreglu. Einstök ofbeldisatvik áttu sér þó stað.
Herinn var settur í viðbragðsstöðu á svæðum í Jóhannesarborg og Durban ef á þyrfti að halda.
Í Hillbrow í Jóhannesarborg voru þrír handteknir eftir að tveir slösuðust þegar skotið var á hóp mótmælenda. Að sögn lögreglu brugðust mótmælendur við með því að kveikja í bifreið hinna grunuðu. Meðal slasaðra var 17 ára ungmenni.
Á öðrum svæðum voru verslanir rændar, rúður brotnar og nokkrir handteknir vegna líkamsárása, ráns og hótana í þessum „að mestu friðsamlegu mótmælum.“
🔥🚨BREAKING: South Africa are chasing illegal immigrants and giving them a deadline to leave “or they will hunt them down and kill them.” “Secure your borders or face chaos” pic.twitter.com/1zNdKOdlRQ
— Dom Lucre | Breaker of Narratives (@dom_lucre) June 30, 2026
Fóru hús úr húsi og kröfðust skilríkja
Í Germiston, skammt frá Jóhannesarborg, segja fjölmiðlar að mótmælendur hafi farið hús úr húsi og krafist þess að fólk sem þeir töldu vera erlenda ríkisborgara sýndi skilríki sín.
Sumir voru afhentir lögreglu með kröfu um að yfirvöld staðfestu hvort þeir væru löglega í landinu. Verslanir í miðborgum Durban og Jóhannesarborgar lokuðu víða meðan mótmælin stóðu yfir.
Anti immigrant protests have resurfaced in South Africa, with demonstrators directing their anger at foreign nationals. This is a recurring issue linked to unemployment, poor service delivery, and questions about national identity.
But is this really the solution?
Blaming… pic.twitter.com/ralYDBU31u
— Prisca 💖 (@Beautifugift) June 30, 2026
Boða vikuleg mótmæli næstu sex mánuði
Jacinta Ngobese-Zuma, leiðtogi samtakanna March and March, sagði að mótmæli yrðu haldin á hverjum fimmtudegi næstu sex mánuði þar til stjórnvöld hefðu losað landið við alla ólöglega innflytjendur.
Fulltrúi samtakanna Operation Dudula sagði við BBC að þau myndu halda áfram að þrýsta á lögreglu að handtaka alla sem væru ólöglega í landinu.
Forseti Suður-Afríku, Cyril Ramaphosa, fundaði með skipuleggjendum mótmælanna daginn áður í tilraun til að draga úr spennu. Hann hvatti mótmælendur til að sýna stillingu og minnti á að milljónir erlendra ríkisborgara byggju löglega í landinu og nytu verndar stjórnarskrár landsins. Þó hefur hann viðurkennt að þörf sé á breytingum á innflytjendakerfi landsins.
The situation in South Africa is NO joke!
Anti-migrant protesters force foreigners out of their houses in Germiston.
And handing them over to the authorities.
Apparently legal migrants and even some children were also assaulted.
But…the diaspora.🙊 pic.twitter.com/Rso0KgjneV
— Cointel Bro 🇺🇸 (@cointel__bro) July 1, 2026
Tugþúsundir handteknir og fluttir úr landi
Samkvæmt opinberum tölum eru rúmlega þrjár milljónir skráðra erlendra ríkisborgara í Suður-Afríku, en óljóst er hversu margir eru þar án leyfis. Lögreglan segir um 50.000 ólöglega innflytjendur hafa verið handtekna frá áramótum og um 25.000 þeirra þegar verið fluttir úr landi.
Nígería hefur flutt um 600 ríkisborgara sína heim og Gana, Malaví, Mósambík og Simbabve hafa einnig hafið umfangsmikla brottflutninga á eigin þegnum.
Athygli vekur hvernig fjölmiðlar fjalla um mótmælin
Athygli vekur að þrátt fyrir umfang mótmælanna og alvarlegar hótanir um morð á innflytjendum hafa stórir alþjóðlegir fjölmiðlar ekki lýst þeim sem „öfgahægri“ eða „far right“ mótmælum í umfjöllun sinni.
Það er nokkuð frábrugðið því sem oft hefur sést í umfjöllun um sambærileg mótmæli í Evrópu, þar sem fjölmiðlar hafa gjarnan tengt slík mótmæli við öfgahægri eða þjóðernissinnaðar hreyfingar.