Lögreglan á Suðurlandi handtók sex rúmenska ríkisborgara vegna vasaþjófnaðar á ferðamannastöðum undanfarnar vikur.
„Þetta eru samanlagt mörg tilfelli og hleypur á töluverðum upphæðum,“ segir Einar Sigurjónsson aðalvarðstjóri á Suðurlandi. Helst sé reiðufé og greiðslukortum stolið af ferðamönnum á fjölsóttum stöðum.
Þrír voru gripnir við þjófnað og handteknir við Seljalandsfoss. Þar hefur lögreglan haft aukna viðveru þar sem vasaþjófnaður hefur verið viðvarandi.
Hinir þrír voru handteknir á Selfossi eftir að hafa verið eftirlýstir og grunaðir um að vera viðriðnir sömu brotastarfsemi.
Fólkinu verður vísað úr landi á grundvelli laga um útlendinga.
Grunuð um að tengjast skipulagðri brotastarfsemi
Lögreglu grunar að þau sem voru handtekin hafi verið atkvæðamikil. Þá er grunur um að þau tengist skipulagðri glæpastarfsemi þar sem fólk kemur til landsins í þeim tilgangi að stunda vasaþjófnað.
Einar segir að lögreglu hafi borist margar tilkynningar um vasaþjófnað að undanförnu. Hann telur að þær séu á bilinu 10 til 15 á viku.
„Þetta er búið að vera of mikið og of lengi,“ segir Einar sem bætir við að lögreglan hafi verið að beita sér gegn vasaþjófnaði og ætli að gera það áfram. „Við verðum með áframhaldandi aðgerðir.“