„Mjög ó­raun­veru­leg og full af ást“ - Vísir

„Mjög ó­raun­veru­leg og full af ást“ - Vísir

„Mjög ó­raun­veru­leg og full af ást“ - Vísir

Margrét, sem er 35 ára, er sérfræðingur í markaðstækni og Arnór Kári er 37 ára og starfar sem hugbúnaðarverkfræðingur. Saman eiga þau tvo syni. 

Arnór og Margrét eiga synina Úlf og Björn.Aðsend

„Við erum búin að vera saman í fimmtán ár sem er pínu ótrúlegt, sérstaklega að hugsa til þess hvað við erum orðin gömul,“ segja hjónin kímin en þau hafa verið búsett í London í bráðum áratug. Blaðamaður ræddi við þau um stóra daginn þeirra.

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðumst fyrir sirka tveimur árum, sátum saman á pub og drukkum bjór. Allt eins og það á að vera.

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Ég myndi segja að skipulagið hafi farið af stað fyrir tíu mánuðum. Þá byrjuðum við alvarlega að skoða staðsetningar og pæla hvernig andrúmsloft okkur langaði að hafa.

Hjónin byrjuðu að skipuleggja brúðkaupið tíu mánuðum fyrir stóra daginn.Aðsend

Hvar hélduð þið brúðkaupið og var erfitt að ákveða staðsetninguna?

Við héldum brúðkaupið okkar í Norður-London sem hefur verið heimilið okkar síðastliðin níu ár. 

Árin okkar í London hafa verið mjög mótandi, strákarnir okkar tveir eru báðir fæddir hér, svo okkur langaði að fagna lífinu okkar í tengslum við það sem við höfum byggt hér saman. 

Brúðkaupsstaðurinn var Lauderdale House í Waterlow Park, Highgate, sem er yndislegur garður og staður. Við áttum heima stutt frá garðinum þegar Úlfur, eldri sonur okkar, fæddist og fórum mjög oft í göngutúra þar svo þessi staðsetning er okkur mjög kær. Við búum núna í nærliggjandi hverfi rétt hjá og förum oft þangað um helgar.

Brúðkaupið var haldið í Norður-London en staðurinn er mjög kær brúðhjónunum.Aðsend

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Brúðkaupsdagurinn var alveg yndislegur. Á deginum var gott jafnvægi á milli þess að vera tvö saman að njóta augnabliksins og að fagna með fólkinu okkar. Við gistum alla helgina á St Pancras Renaissance-hótelinu og byrjuðum daginn þar á myndatöku. 

Fórum svo í Highgate og kláruðum myndatöku þar í Waterlow Park. Eftir það var athöfnin, sem var mjög innileg, sérstaklega þar sem Eyrún systir mín sem er óperusöngkona söng fyrir okkur í athöfninni.

Eyrún, systir Margétar, söng í athöfninni.Aðsend

Við fengum svo smá tíma saman eftir athöfnina, skáluðum og svo hittum við fólkið okkar aftur sem var búið að raða sér upp og kasta blómum. Við ákváðum að hafa brúðkaupsköku og kampavín í byrjun veislunnar, sérstaklega því við vildum að strákarnir okkar væru með okkur í því. 

Svo var þetta bara klassískt: góður matur, gott vín, ræður, eftirréttur, hljómsveit og partý. Eftir partýið vorum við með rauðan retro London-strætó sem flutti gestina í miðborgina. Við vildum aðallega hafa þetta afslappað, skemmtilegt og góða stemningu.

Það er mikill stæll á rauðri retro partýrútu!Aðsend

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Við vorum með forpartý kvöldið fyrir brúðkaupið til að fá að hitta alla aðeins meira og hrista saman hópinn. Við héldum það á mjög skemmtilegum stað sem heitir The Lighterman og er við kanalinn í Kings Cross

Það kvöld var svo skemmtilegt og í raun kom á óvart hvað það gerði brúðkaupið innilegra daginn eftir, að hafa spjallað og glaðst aðeins aukalega fyrir stóra daginn. Það tók líka smá af pressunni eða stressinu fyrir brúðkaupsdaginn sjálfan og maður gat bara fullkomlega notið dagsins.

Brúðhjónin náðu að njóta dagsins til hins ítrasta.Aðsend

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, ég myndi segja það, við vorum frekar samstíga í þessu.

Margrét og Arnór eru samstíga í skipulagi og lífinu.Aðsend

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Aðallega að þetta væri ekki of mikil dagskrá og reyna að hafa þetta þægilega og innilega stemningu. Auðvitað þarf samt allt að smella á bak við tjöldin svo það geti gerst, svo mikilvægast var í raun bara að allir sem voru að sjá um veisluna væru með á nótunum um hvenær og hvað ætti að gerast á hvaða tíma.

Þægileg og innileg stemning einkenndi brúðkaupið.Aðsend

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Pinterest var alveg mikið notað en svo var starfsfólkið í Lauderdale House alveg sérstaklega hjálplegt við að koma með hugmyndir.

Hjónin fengu meðal annars innblástur frá Pinterest og starfsfólki salsins.Aðsend

Hvað stendur upp úr?

Eins væmið og það hljómar þá er það aðallega sem stendur upp úr er bara að hafa verið með fólkinu okkar og fá að knúsa og fagna þessu tilefni með þeim. 

Strákarnir okkar, Úlfur og Björn, sögðu að við hefðum verið eins og kóngur og prinsessa og það er svo dýrmætt að hafa upplifað þetta með þeim.

Samveran með þeirra nánustu stendur upp úr að sögn hjónanna.Aðsend

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Styrmir, föðurbróðir Arnórs, sá um veislustjórn og hann er náttúrulega bara algjör skemmtikraftur svo hann sá mjög vel um að það væri góð stemning og allir í góðum gír. 

Sveppi var með uppistand á föstudagskvöldinu, svo var sjö manna brúðkaupshljómsveit að spila eftir matinn á laugardeginum og síðast en ekki síst hélt DJ Housgeir uppi megastuði þar til í lok kvölds!

Dansinn dunaði í brúðkaupsveislunni.Aðsend

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Veðrið kom smá á óvart. Sumarið sem var að líða var eitt heitasta sumar í London síðastliðin ár en svo bara snöggkólnaði og það skapaði smá hauststemningu.

Hvað voru margir gestir?

Um hundrað manns, fjölskylda og vinir frá Íslandi, London og annars staðar erlendis.

Hundrað gestir samankomnir í haust-brúðkaupi í London.Aðsend

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir þau?

Það tók mig smá tíma að finna kjólinn en ég var búin að kaupa ermarnar sem voru með slöri löngu áður en ég fann blessaðan kjólinn því ég vissi að ég vildi vera með þær. Ég sá þessar ermar á Instagram örugglega stuttu eftir að við trúlofuðum okkur og vissi bara að ég vildi þær.

Þær eru frá HalfPenny London og ég fann þær á brúðkaupsfatasíðu sem selur notaða brúðarkjóla og fylgihluti. 

Það tók þó smá tíma að finna rétta kjólinn við þær en það hafðist í Reformation Bridal búð í London. Arnór keypti fötin sín í Thomsen Reykjavík og það tók sirka þrjátíu mínútur.
Ermarnar með slörinu eru einstaklega elegant.Aðsend

Varstu með fataskipti?

Nei, mig langaði bara að vera í kjólnum mínum allan tímann og með ermarnar.

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Nota AI í alls kyns tímafrek verkefni eins og að fá hugmyndir, fá endurgjöf á skipulagið miðað við tóninn sem maður vill, rannsaka alls kyns gæði á vörum, setja saman matseðla og svo framvegis.

Hjónin fengu hjálp frá gervigreind í tímafrek verkefni í skipulaginu. Aðsend

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Hún er alveg mjög óraunveruleg og full af ást. 

Það tók daga og mögulega vikur að átta sig fullkomlega eftir svona stóran og persónulegan viðburð.
Brúðhjónin eru yfir sig þakklát fyrir vel heppnaðan dag og verðmæta vini.Aðsend

Ætlið þið í brúðkaupsferð?

Við fórum tvö í litla brúðkaupsferð til Parísar daginn eftir brúðkaupið með Eurostar-lestinni frá London. Það hélt svo sannarlega jákvæðu tilfinningunum eftir helgina lengur í kerfinu sem var mjög ljúft. 

París er líka svo óraunverulega falleg svo hún var fullkominn áfangastaður að fara til eftir þetta. Ég hugsa að við förum ekki í aðra brúðkaupsferð nema vonandi bara aftur á Glastonbury-tónlistarhátíðina á næsta ári.

Brúðhjónin skelltu sér til Parísar daginn eftir brúðkaupið. Aðsend
#full #mjög #vísir #ást #óraunveruleg


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262937722d/-mjog-o-raun-veru-leg-og-full-af-ast-

📰 Aðrar fréttir

Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir
📅 22.09.2026 👁️ 0
Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens Frederik Nielsen formaður grænlensku landstjórnarinnar hafa nú un...
Spyr hvern verkfallið eigi að bíta og stingur upp á nýrri útfærslu
📅 22.09.2026 👁️ 0
Spyr hvern verkfallið eigi að bíta og stingur upp á nýrri útfærslu
Gunnar Ármannsson lögmaður spyr hvern yfirvofandi verkfall flugvirkja hjá Icelandair eigi að bíta og segir það munu bitna helst á aðilum sem ekki geta...
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
📅 22.09.2026 👁️ 0
Spyrnur ungmenna reglulega tilkynntar til lögreglu
Hörður Lilliendahl, varðstjóri í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu gera sitt besta til að sporna við hraðaakstri. Ungt fó...
„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 0
„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ - Vísir
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni en tilefnið eru orð Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra á blaðamannafundi ...
Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 0
Gómaður með gríðar­legt magn af barna­klámi - Vísir
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí en var fyrst birtur síðdegis í dag. Lögreglan ákærði manninn fyrir kynferðisbrot með því að hafa í októb...
Bróðir Díönu varpar fleiri sprengjum um konungsfjölskylduna - „Þetta er orðrétt eftir honum haft“
📅 22.09.2026 👁️ 2
Bróðir Díönu varpar fleiri sprengjum um konungsfjölskylduna - „Þetta er orðrétt eftir honum haft“
Væntanleg bók jarlsins Charles Edward Maurice Spencers er ekki enn komin í hillur bókabúðanna en hefur þegar vakið gríðarlega athygli en þar fjallar h...
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu
📅 22.09.2026 👁️ 2
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja konu frá Afríkuríki og barni hennar um alþjóðlega vernd. Hafði konan ...
Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
📅 22.09.2026 👁️ 1
Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar. Miðað við þær eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásæ...
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
📅 22.09.2026 👁️ 1
Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Meðal umræðuefna hans va...
Bókun 35 komin fram á þingi
📅 22.09.2026 👁️ 1
Bókun 35 komin fram á þingi
Frumvarp um bókun 35 hefur enn og aftur verið lagt fram á Alþingi. Ríkisstjórnin er staðráðin í að klára málið í þetta sinn en frumvarpið var fyrst la...
Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Nýtt á­hættu­mat: Bjóða Grind­víkingum að kaupa húsin til baka - Vísir
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að ríkisstjórnin hafi í dag fjallað um niðurstöður þess hluta endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík s...
Flestir fé­lagar vilji frekari kjara­bætur vegna forsendubrests - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Flestir fé­lagar vilji frekari kjara­bætur vegna forsendubrests - Vísir
Ný kjarakönnun hjá félagsfólki Fagfélaganna, sem samanstendur af RSÍ, VM og MATVÍS, sýnir að sjötíu prósent svarenda hafi ekki fengið kjarabætur umfra...
Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur
📅 22.09.2026 👁️ 1
Inga Sæland: Símabannið breytir öllu – börnin verða ánægðari og læra betur
Í Finnlandi breytti símabann í skólum öllu á mettíma. Börnin eru glaðari og námsárangur betri. Það er mikið að gerast í menntamálunum á vakt Ingu Sæla...
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð
📅 22.09.2026 👁️ 1
Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðust...
Plot targeting Manchester's Jewish community disrupted, say police
📅 22.09.2026 👁️ 1
Plot targeting Manchester's Jewish community disrupted, say police
Two men were arrested over a suspected terrorist plot to target the Jewish community, police say.
Plot targeting Manchester Jewish community disrupted, say police
📅 22.09.2026 👁️ 1
Plot targeting Manchester Jewish community disrupted, say police
Two men were arrested in Manchester on Sunday, say counter-terror police.
Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Kristján hótar lög­sókn verði bann að lögum - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali AFP fréttaveitunnar við Kristján, sem ekki hefur gefið Vísi kost á viðtali síðustu vikur. Hanna Katrín Fr...
Ed Davey promises tax cuts for millions if UK rejoins EU single market
📅 22.09.2026 👁️ 2
Ed Davey promises tax cuts for millions if UK rejoins EU single market
The Lib Dem leader vows to raise tax thresholds if he becomes PM, in a speech to his party conference.
Halda and­stæðingum fjarri Græn­landi með sam­komu­lagi - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Halda and­stæðingum fjarri Græn­landi með sam­komu­lagi - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Fredrik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, staðfestu samkomul...
Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind - Vísir
Þess er getið í helstu erlendum miðlum að forsetinn hafi haldið sig við marga kunnuglega talpunkta í ræðunni. Hann ítrekaði meðal annars rétt landa ti...
Mælistikan á lofti
📅 22.09.2026 👁️ 1
Mælistikan á lofti
Mælistikan á lofti Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Nýtt eld­hús eft­ir máli eft­ir Frið­geir Ein­ars­son, sem sýnt er í Kass­an­um í Þjóð­leik­hús...
Earl Spencer apologises to Piers Morgan over error in book
📅 22.09.2026 👁️ 2
Earl Spencer apologises to Piers Morgan over error in book
The BBC understands the book's publisher, Penguin, will be amending the inaccuracy in future editions of the book.
Spencer's book should be pulled from shelves, Piers Morgan says
📅 22.09.2026 👁️ 0
Spencer's book should be pulled from shelves, Piers Morgan says
The BBC understands the book's publisher, Penguin, will be amending the inaccuracy in future editions of the book.
Fer í mál við stjórnvöld ef til hvalveiðibanns kemur
📅 22.09.2026 👁️ 1
Fer í mál við stjórnvöld ef til hvalveiðibanns kemur
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segist stefna íslenska ríkinu fyrir dómstóla verði hvalveiðibanni komið á. Frumvarp þess efnis verður lagt fra...
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu
📅 22.09.2026 👁️ 2
Geta ekki tekið inn börn sökum manneklu
Fjölskylduráð Múlaþings ákvað á dögunum að hækka heimgreiðslur til foreldra úr 52.153 krónur á mánuði í 104.500 krónur. Þetta er gert til þess að mæta...
'Looksmaxxing' influencer 'Clavicular' charged with rape in Massachusetts
📅 22.09.2026 👁️ 1
'Looksmaxxing' influencer 'Clavicular' charged with rape in Massachusetts
Authorities allege Braden Peters drugged a woman before assaulting her in May. He denies the charges.
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
📅 22.09.2026 👁️ 1
Dánarorsök Hayden Panettiere opinberuð
Dánarorsök bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere liggur nú fyrir, rúmum mánuði eftir að hún fannst látin í íbúð í Greenville í Suður-Karólínu. Hún...
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting
📅 22.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Eyðsla eða fjárfesting
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Er fjármunum sem varið er til velferðar og geðheilbrigðismála óþarfa eyðsla eða fjárfesting?Fjármálaráð hefur ...
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði
📅 22.09.2026 👁️ 2
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði
Tveir pólskir menn eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á manndrápi í Vallargerði þann 9. ágúst. Mennirnir voru áður í gæsluvarðhaldi er...
Jóhannes Haukur segist hafa fagnað samtali áður en appið kom til: „Hvað eyðir Reykjavíkurborg í þetta?“
📅 22.09.2026 👁️ 1
Jóhannes Haukur segist hafa fagnað samtali áður en appið kom til: „Hvað eyðir Reykjavíkurborg í þetta?“
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson vakti á sunnudag athygli á appinu Læsir, sem heldur utan um heimalestur dóttur hans og annarra nemenda. Segir ha...
Umburðarlyndi músliminn
📅 22.09.2026 👁️ 1
Umburðarlyndi músliminn
Umburðarlyndi músliminn Fréttin22. september 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Breski biskupinn Sarah Mullally er fyrsta konan til að gegna leiðtogahl...
Breyttu úrskurði um nokkur atkvæði
📅 22.09.2026 👁️ 1
Breyttu úrskurði um nokkur atkvæði
Landskjörstjórn hefur tilkynnt um endanlega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem haldin var 29. ágúst.Þetta...
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn?
📅 22.09.2026 👁️ 1
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn?
Hvers vegna hræðast þau Miðflokkinn? Fréttin22. september 2026Innlent, Júlíus Valsson, StjórnmálLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Í þingflokkshe...
Inquest opens into 'Putney Pusher' suspect's death
📅 22.09.2026 👁️ 1
Inquest opens into 'Putney Pusher' suspect's death
Nicholas Brandram, who was suspected of pushing a woman into the path of a bus, was found dead last week.
Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar - Vísir
Nefndin kallaði á fundi sínum í gær eftir upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar um fjárhagsaðstoð frá og með árinu 2016. Hún vill fá upplýsingar ...
Prentmet Oddi tekur yfir rekstur Héraðsprents og útgáfu Dagskrárinnar
📅 22.09.2026 👁️ 1
Prentmet Oddi tekur yfir rekstur Héraðsprents og útgáfu Dagskrárinnar
Prentmet Oddi tilkynnti í dag um að þeir hefðu tekið yfir rekstur Héraðsprents á Egilsstöðum. Héraðsprent var stofnað árið 1972 og hefur því verið sta...
Þjóðvegur 1 lokaður á kafla í Borgarfirði í nótt
📅 22.09.2026 👁️ 2
Þjóðvegur 1 lokaður á kafla í Borgarfirði í nótt
Þjóðvegur 1 verður lokaður á kafla í Melasveit í Borgarfirði frá tíu í kvöld til klukkan átta í fyrramálið. Hringveginum verður lokað vegna ræsagerðar...
Autopsy shows Hayden Panettiere died from overdose of fentanyl and other drugs
📅 22.09.2026 👁️ 1
Autopsy shows Hayden Panettiere died from overdose of fentanyl and other drugs
The death of the child star - who had fentanyl, Xanax, a muscle relaxant and antipsychotic medication in her system - was ruled an accident.
Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Í leyfi á meðan kosninga­svik eru til rann­sóknar - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka nú kæru vegna þingkosninganna sem fóru fram á sunnudag fyrir rúmri viku. Kjósendur í Dölunum í Norður-Svíþjóð eru sagðir hafa ...
Suspected drug dealer arrested after police seize 4 kilos of cocaine in Lanzarote
📅 22.09.2026 👁️ 1
Suspected drug dealer arrested after police seize 4 kilos of cocaine in Lanzarote
A man has been remanded in custody after police seized around four kilos of cocaine and €25,000 in cash during a major drugs operation in Lanzarote.Na...
Police seize 4kg of cocaine and find €25,000 hidden in a freezer
📅 22.09.2026 👁️ 0
Police seize 4kg of cocaine and find €25,000 hidden in a freezer
Police in Lanzarote have seized approximately four kilograms of cocaine and €25,000 in cash during an operation targeting the distribution of the drug...
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
📅 22.09.2026 👁️ 2
Aðalatriði varnarsamkomulags um Grænland frá 1951
Nýtt varnarsamkomulag á milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna verður undirritað í dag þegar Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-...
Tim Westwood charged with two more sexual offences
📅 22.09.2026 👁️ 1
Tim Westwood charged with two more sexual offences
The alleged sexual offences date back to 1991 and 2004.
Bein út­sending: Ræða Trumps á alls­herjar­þinginu - Vísir
📅 22.09.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Ræða Trumps á alls­herjar­þinginu - Vísir
Mikil ólga er nú innan Sameinuðu þjóðanna, eins og víða um heiminn allan. Þá eru einnig uppi spurningar um framtíð Sameinuðu þjóðanna, þar sem Trump h...
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld
📅 22.09.2026 👁️ 1
Búast við að aflýsa öllu morgunflugi í kvöld
Um eitt þúsund farþegar Icelandair sem eiga að fljúga frá Bandaríkjunum til Evrópu í kvöld, með millilendingu á Íslandi, verða endurbókaðir í flug með...
Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi?
📅 22.09.2026 👁️ 2
Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi?
Þeir stjórnmála- og embættismenn sem hafa séð samninginn sem verður undirritaður í dag hafa haldið spilunum þétt að sér. Það eina sem smitast hefur út...
Trump staðfestir að Bandaríkin vilji tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi
📅 22.09.2026 👁️ 1
Trump staðfestir að Bandaríkin vilji tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi
Donald Trump hefur nú lokið máli sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Nú ætti hann að fara að gera sig kláran til að hitta Dani og Grænlendinga ...
Nielsen: „Win-win-win samningur“
📅 22.09.2026 👁️ 2
Nielsen: „Win-win-win samningur“
Dönsk stjórnvöld hafa birt samninginn á heimasíðu sinni.Hér má nálgast hann.Donald Trump var spurður, eftir undirritunina, hvort hann væri búinn að le...
Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka Pituffik
📅 22.09.2026 👁️ 2
Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka Pituffik
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, er að vonum ánægður með áfangann í dag. „Þetta var krefjandi vegferð. En hér erum við – með samning...
Voru með mikið reiðufé í farangrinum
📅 22.09.2026 👁️ 1
Voru með mikið reiðufé í farangrinum
Tveir erlendir menn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir peningaþvætti. Mennirnir eru með íslenskar kennitölur og eru skráðir til heimilis að Smiðs...