Maðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás með hníf í Belfast í fyrrakvöld hefur misst annað augað eftir árásina. Frá þessu var greint í dómssal í Belfast í morgun, þar sem árásarmaðurinn kom fyrir dómara. Hann heitir Hadi Alodid og er flóttamaður frá Súdan, en kom til Bretlands 2023 og fékk þá stöðu hælisleitanda.
Alodid hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann kom fyrir dómara með aðstoð fjarfundabúnaðar í fangelsinu þar sem hann er í varðhaldi. Hann er ákærður fyrir morðtilraun og fyrir að hafa haft hníf í fórum sínum.
Aloudi er sakaður um að hafa ráðist að fórnarlambinu á götu í íbúðahverfi í Belfast í fyrrakvöld og stungið hann margsinnis í höfuð og háls. Vegfarendur sem voru nærri náðu að draga Aloudi í burtu og hann var handtekinn skömmu síðar.
Mikil mótmæli brutust út í Belfast í kjölfarið og myndböndum af árásinni hefur verið dreift víða á samfélagsmiðlum.
Í Glasgow í Skotlandi var lögregla einnig með viðbúnað í gærkvöld, þegar nokkur hundruð grímuklæddir menn hópuðust saman í miðborginni. Mótmælasamkomur voru einnig í Edinborg.