Árásin hæfði heræfingarsvæði í Bucha-héraði, um 20-30 kílómetrum frá miðborg Kærugarðs. 27 heimili eru sögð hafa eyðilagst í árásinni. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að um hundrað hefðu særst í árásinni.
Árásin var gerð með langdrægum skotflaugum en í gær fundaði Selenskí með fulltrúum Raytheon, bandarísks fyrirtækis sem framleiðir Patriot-loftvarnakerfi sem Úkraína þarfnast sárlega til að verjast þeim flaugum sem Rússar nota til að sækja fram í innrás sinnim, segir í umfjöllun AP.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hét því að veita Úkraínu leyfi til að framleiða Patriot-varnarkerfi fyrr í mánuðinum.
Auk þess hafi fimm látist í annarri árás Rússa í austurhluta borgarinnar Sloviansk í dag.
Úkraínuher hafi aukið eigin árásir á innviði Rússlands. Nú síðast hafi herinn ráðist á flutningamiðstöð Wildberries í Sankti-Pétursborg, en Wildberries er ein stærsta netsöluverslun Rússlands. Úkraína hafi beint árásum sínum á fjórar aðrar vörugeymslur Wildberries víðs vegar um Rússland á síðustu dögum og ollið gríðarlegum eldsvoðum.
Jafnframt hafi sex látist og 26 særst í árás Úkraínuhers á rússnesku borgina Kirov. Selenskí sagði að ráðist hefði verið á „eina mikilvægustu hernaðaraðstöðuna“ í Kirov sem framleiði „íhluti fyrir flugvélar og flugskeytabúnað“ sem notaður er í árásum Rússa á Úkraínu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.