Mín borg – „Hildur Björndsdóttir var sigurvegari í kappræðum“

Jón Magnússon skrifar:
Hildur Björndsdóttir var sigurvegari í kappræðum í sjónvarpssal í gærkveldi. Henni tókst að koma áherslum sínum vel til skila, talaði eins og sá sem valdið hefur auk heldur sem nánast allir mótframbjóðendur hennar beindu spurningum til hennar.
Frammistaða efsta manns Samfylkingarinnar var nánast brjóstumkennanleg. Staða hans er vissulega erfið, þar sem hann dregur tveggja áratuga slóða óstjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík á eftir sér, en samt var frammistaða hans sem borgarstjórnarefnis Samfylkingarinnar langt undir væntingum.
Ari Edwald stóð sig vel og kom helstu áhersluatriðum til skila, en það háði honum hve þáttastjórnendurnir einkum þó Sigríður Hagalín Björnsdóttir voru hlutdrægir í hans garð og leyfðu honum iðulega ekki að klára mál sitt auk annarrar uppstillingar svo sem með spurningum o.fl. sem sýndi greinilega hlutdrægni þeirra og neikvæðni í garð Miðflokksins.
Fulltrúi Viðreisnar lítur svo á að Borgarlínan sé orðin að náttúrulögmáli og engu verði breytt. Nokkuð merkileg afstaða þar sem framkvæmdir við Borgarlínuna eru nánast á byrjunarreit.
Að öðru leyti átti fulltrúi Viðreisnar góða spretti eins og Einar Þorsteinsson, en skelfing er leiðinlegur sjálfsbirgingsháttur stjórnmálamanna eins og þeirra, sem telja sig til "góða fólksins" og hossa sér í háhæðum velvildar í garð ákveðinna minnihlutahópa oft á kostnað meirihlutans og telja sig þess vegna ekki geta unnið með Miðflokknum sem boðar skynsemisvæðingu í þeim efnum þvert á "Wókið".
Spilverk þjóðanna saung um "Styttur borgarinnar". Ágætt framlag á sínum tíma. Spurt var um nýja styttu og var það vel til fundið hjá Hildi Björnsdóttur að nefna styttu af Hallveigu Fróðadóttur konu Ingólfs Arnasonar. Það var líka tímabært að Ari Edwald og Sigfús Aðalsteinsson kæmu að þeirri nauðsyn, að borgarstjórn Reykjavíkur bætti fyrir glórulaus mistök sín á síðasta kjörtímabili og kæmi aftur á stall styttu af mikilvirkasta og ástsælasta æskulýðsleiðtoga Íslands fyrr og síðar sr. Friðriki Friðrikssyni.
Nú er að drífa sig á kjörstað og kjósa þann flokk,sem er líklegastur til að stjórna Reykjavík best á næsta kjörtímabili.