Rótin – Félag um velferð og vellíðan kvenna vill að embætti landlæknis geri ítarlega skoðun á heilbrigðisþjónustu SÁÁ vegna þess sem það kallar kerfisleg álitaefni í meðferð við vímuefnavanda. Þetta kemur fram í erindi sem Rótin sendir til embættis landlæknis.
Félagið vill meðal annars að landlæknir meti hvort stjórnskipan SÁÁ geri heilbrigðisstarfsmönnum kleift að uppfylla lögbundnar skyldur sínar, kalli eftir heildstæðri lýsingu á meðferðarstefnu SÁÁ og skýri hvaða lágmarkskröfur embættið gerir til þverfaglegra teyma þar sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar starfa.
„Rótin telur mikilvægt að núverandi kreppa hjá SÁÁ verði ekki afgreidd sem tímabundið stjórnunar- eða starfsmannamál. Hún gefur tækifæri til að skoða grundvallaratriði í íslensku meðferðarkerfi við vímuefnavanda,“ segir í erindinu.
Embætti landlæknis kannar aðstæður hjá SÁÁ vegna skyndilegra uppsagna stjórnenda. María Heimisdóttir landlæknir lítur þær alvarlegum augum og segir brýnt að tryggja öryggi sjúklinga og gæði þjónustu SÁÁ.
Rótin telur skoðun Landlæknis þurfa að leiða til skýrrar niðurstöðu um hvort stjórnskipan SÁÁ „tryggi að faglegar ákvarðanir séu í höndum þeirra sem hafa lögbundna faglega ábyrgð og hvort stjórnkerfið geri heilbrigðisstarfsfólki kleift að uppfylla skyldur sínar“.
Félagið segir eðlilegt að skoðun á SÁÁ leiði einnig til þess að Embætti landlæknis skoði eftirlit með öðrum stórum meðferðarúrræðum sem eru fjármögnuð með opinberu fé.
Jafnframt sé mikilvægt að embætti landlæknis skýri hvaða kröfur það gerir til þess sem ber faglega ábyrgð á meðferðarstarfi, meðal annars um menntun, starfsréttindi, reynslu, viðveru og raunverulegt ákvörðunarvald um meðferðarstefnu og klíníska þjónustu.