Spænskir hermenn verða sendir til spænsku hólmlendunnar Ceuta á norðurodda Marokkó til að reyna að tryggja öryggi eftir að minnst fimmtán hundruð förufólks komust til borgarinnar yfir landamærin frá Marokkó. Að minnsta kosti 15 drukknuðu við að reyna að komast yfir til Ceuta.
Yfirvöld í Ceuta kölluðu eftir aðstoð spænskra yfirvalda til að ná tökum á ástandinu en svo virðist sem landamæraeftirlit hafi brugðist. Móttökustaðir fyrir fólkið eru yfirfullir og margir hafa þurft að sofa á götunni.
Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanches, sagði í færslu á X að ríkisstjórnin væri að vinna að því hörðum höndum að ná tökum á ástandinu og vinna með marokkóskum og alþjóðlegum yfirvöldum til að koma ástandinu aftur í eðlilegt horf.
Vill að Spáni verði vikið úr Schengen
Forsætisráðherra Ítalíu, Georgia Meloni, kallar eftir því að Spáni verði vikið úr Schengen-samstarfinu vegna komu förufólksins til Ceuta síðustu daga. Hún segir myndefni frá Ceuta sláandi og að Ítalía ætli ekki að sitja hjá aðgerðarlaus.
Utanríkisráðherra Ítalíu, Antonio Tajani, sagði í færslu á X að óregluleg og stjórnlaus koma förufólks væri ógn við þjóðaröryggi. Hann gagnrýndi spænsk yfirvöld fyrir að veita 500.000 innflytjendum ríkisborgararétt nýverið og sagði það ranga ákvörðun sem ýtti undir mansal.
Jose Luis Albares utanríkisráðherra Spánar svaraði Tajani og sakaði hann um að nýta sér innflytjendamál í pólitískum tilgangi. Hann sagði þessar athugasemdir óviðeigandi fyrir samstarfsmann og vinaþjóð og Spánn vænti frekar evrópskrar samstöðu en lýðskrums.
Erfið flóttaleið
Ekki liggur fyrir af hverju svo margt fólk kom til Ceuta núna en það er ekki á allra færi að komast þangað. Sumir synda um fimm kílómetra leið frá marokkóska bænum Fnideq en aðrir reyna að synda styttri leið frá bænum Belyounech.
Breska ríkisútvarpið segir að hæstiréttur Spánar hafi úrskurðað fyrr í þessum mánuði að ekki væri hægt að senda förufólk sem væri stöðvað við að reyna að komast til Ceuta tafarlaust aftur til Marokkó. Þetta á einnig við förufólk sem reynir að komast til Melilla, sem er önnur spænsk hólmlenda.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svo miklum fjölda flótta- og förufólks tekst að komast til Ceuta, en árið 2021 komust yfir 5000 förufólks til hólmlendunnar.