Samfélagsmiðlarisinn Meta hefur fallist á að greiða því sem nemur 2.000 milljörðum íslenskra króna til bandarískra ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu. Sátt náðist í dag.
29 ríki höfðuðu málið og sökuðu Meta um að gera börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram.
„Raunverulegar breytingar“
Meta hefur jafnframt samþykkt að ráðast í umfangsmiklar breytingar með það að markmiði að draga úr hættu á skaða af völdum samfélagsmiðla sinna. Rob Ronta, ríkissaksóknari í Kaliforníu, sagði að það myndi gerast innan nokkurra mánaða.
Hann sagði niðurstöðuna endurspegla raunverulegar breytingar, gagnsæi og raunverulegar varnir fyrir börn.
Samkvæmt gögnum málsins viðurkennir Meta hins vegar ekki ábyrgð á neinum misgjörðum. Fyrirtækið hefur alfarið neitað ásökunum stefnenda.